Golf

Allt jafnt fyrir loka­daginn á Sol­heim Cup

Smári Jökull Jónsson skrifar
Solheim Cup fer fram í Andalúsíu á Spáni.
Solheim Cup fer fram í Andalúsíu á Spáni. Vísir/Getty

Það er æsispenna fyrir lokadaginn á Solheim Cup mótinu í golfi þar sem úrvalslið Evrópu og Bandaríkjanna í kvennaflokki mætast. Evrópa vann þrjá af fjórum síðustu leikjum laugardagsins.

Solheim Cup er keppni þar sem úrvalsliðs Evrópu og Bandaríkjanna mætast í kvennaflokki en fyrirkomulagið er það sama og á Ryder Cup. Fyrstu tvo keppnisdagana leika tveir og tveir leikmenn saman, bæði í fjórleik þar sem leikmenn leika sínum bolta og betra skorið á hverri holu gildir. Hins vegar í fjórmenning þar sem leikmenn nota sama boltann og skiptast á að skjóta.

Bandaríkin vann allar fjórar viðureignirnar í morgun og þurfti Evrópa því að koma til baka í fjórleiknum eftir hádegið. Það tókst þeim. Evrópu vann þrjá af fjórum leikjum og staðan fyrir lokadaginn því jöfn 8-8.

Charley Hull og Leona Maguire unnu sigur á Nelly Korda og Ally Ewing 4&3, leiddu með fjórum stigum þegar aðeins þrjár holur voru eftir óleiknar.

Þær Cheyanne Knight og Angel Yin unnu sigur á Anna Nordquist og Caroline Hedwall frá Svíþjóð, Madelene Sagström og Emily Pedersen höfðu betur gegn Rose Zhang og Andrea Lee og á unnu Carlota Ciganda og Linn Grant gegn Danielle Kang og Lilia Vu.

Evrópa þarf sex sigra í tólf leikjum til að halda Solheim bikarnum hjá sér en Evrópa hefur haft betur í síðsutu tveimur keppnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×