Íslenski boltinn

Víkingur vann meðan Fjölnir og Leiknir skildu jöfn

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Víkingur stillti sterku liði upp og vann fyrsta leik Reykjavíkurmótsins gegn ungum og sprækum Fylkismönnum.
Víkingur stillti sterku liði upp og vann fyrsta leik Reykjavíkurmótsins gegn ungum og sprækum Fylkismönnum. Vísir/Hulda Margrét

Undirbúningstímabil íslenskra knattspyrnuliða fyrir komandi átök í sumar hófst af alvöru með fyrstu leikjum Reykjavíkurmótsins í dag. 

Ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar Víkings öttu kappi við Fylki í fyrsta leik dagsins. Leikmennirnir þrír sem sömdu við félagið á dögunum, Valdimar Ingimundarson, Jón Guðni Fjóluson og Pálmi Rafn Arinbjörnsson, voru allir utan hóps. 

Gestirnir úr Árbænum gáfu nokkrum ungum leikmönnum tækifæri í byrjunarliðinu í dag. Fylkismenn fengu sömuleiðis að vera þeir fyrstu til að klæða sig og undirbúa sig fyrir leik í nýjum gestaklefa Víkings sem vakið hefur mikla athygli. 

Víkingur komst marki yfir strax á fyrstu mínútu leiksins og tvöfölduðu forystuna á 39. mínútu. Fylkismenn minnkuðu muninn rétt áður en hálfleiksflautið gall og jöfnuðu svo leikinn strax í upphafi seinni hálfleiks. 

Íslandsmeistararnir bættu fljótlega úr því og skoruðu tvívegis til viðbótar. Sigurinn var svo endanlega tryggður þegar Aron Snær Guðbjörnsson, sem var að spila sinn fyrsta leik í byrjunarliði Fylkis, var rekinn af velli undir lok leiks. Lokaniðurstaða 4-2 sigur Víkings á heimavelli hamingjunnar. 

Í seinni leik dagsins mættust svo Lengjudeildarliðin Fjölnir og Leiknir. 

Aftur kom mark snemma, Leiknir tók forystuna þegar rétt tæpar tvær mínútur voru liðnar af leiknum en Fjölnismenn jöfnuðu fljótlega. Það dró svo ekki aftur til tíðinda fyrr en undir lok leiks. Leiknismenn komust yfir á 80. mínútu en aftur jöfnuðu Fjölnismenn, aðeins fimm mínútum síðar. Liðin gengu því jöfn frá borði, lokaniðurstaða 2-2. 

Fyrirkomulag Reykjavíkurmótsins

Liðin fjögur sem kepptust við í dag eru öll í A-riðli mótsins ásamt ÍR. Nágrannarnir Fylkir og Fjölnir mætast næsta fimmtudag, ÍR tekur svo á móti Víkingi í fyrsta mótsleik sínum næsta laugardag. 

B-riðillinn er svo skipaður Fram, KR, Val og Þrótti. Leikar hefjast þar næsta föstudag þegar ríkjandi Reykjavíkurmeistarar Fram heimsækja KR. Degi síðar tekur Valur á móti Þrótti. 

Stöðu riðlanna og leikjafyrirkomulag má finna hér (A-riðill) og hér (B-riðill). Sigurvegarar hvors riðils mætast í úrslitaleik þann 1. febrúar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×