Fótbolti

Víkingur af­greiddi Fjölni auð­veld­lega

Dagur Lárusson skrifar
Helgi Guðjónsson skoraði fyrsta mark leiksins
Helgi Guðjónsson skoraði fyrsta mark leiksins Vísir/Hulda Margrét

Íslandsmeistarar Víkings afgreiddu Fjölnismenn heldur auðveldlega í Reykjavíkurmótinu í kvöld er liðin mættust.

Lokatölur leiksins voru 4-0 en öll fjögur mörk leiksins komu í fyrri hálfleiknum.

Á 6. mínútu skoraði Helgi Guðjónsson eftir stoðsendingu frá Ara Sigurpálssyni. Sjö mínútum síðar skoraði síðan Danijel Djuric og aftur var það Ari Sigurpálsson sem gaf stoðsendinguna.

Gísli Gottskálk Þórðarson skoraði síðan á 31. mínútu áður en Danijel Djuric skoraði sitt annað mark sex mínútum síðar eftir stoðsendingu frá Viktor Andrasyni.

Víkingur hefur nú unnið alla þrjá leiki sína í Reykjavíkurmótinu en næsti leikur liðsins er gegn Fjölni á mánudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×