Handbolti

Ó­trú­legir yfir­burðir Selfyssinga sem tryggðu sér sæti í undan­úr­slitum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Katla María Magnúsdóttir skoraði 15 mörk fyrir Selfoss.
Katla María Magnúsdóttir skoraði 15 mörk fyrir Selfoss. HSÍ

Selfoss tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum Powerade-bikars kvenna í handbolta með nítján marka stórsigri gegn KA/Þór, 34-15.

Selfyssingar, sem leika í Grill 66-deildinni og tróna þar á toppnum, settu tóninn snemma og skoruðu fyrstu sex mörk leiksins gegn botnliði Olís-deildarinnar. Norðankonur komu ekki boltanum í netið fyrr en eftir um níu mínútna leik og strax var orðið ljóst að gestirnir ættu langt kvöld framundan.

Heimakonur náðu tíu marka forystu eftir tæplega tuttugu mínútna leik í stöðunni 12-2 og Selfyssingar leiddu með þrettán mörkum þegar flautað var til hálfleiks, staðan 19-6.

Í síðari hálfleik hægðist nokkuð á markaskorun Selfyssinga, en liðið jók þó forskot sitt á upphafsmínútunum. Mest náði liðið tuttugu marka forskoti og heimakonur unnu að lokum afar öruggan nítján marka sigur, 34-15. Selfyssingar eru þar með á leið í undanúrslit Powerade-bikars kvenna, en KA/Þór situr eftir með sárt ennið.

Katla María Magnúsdóttir var markahæsti leikmaður vallarins með fimmtán mörk fyrir Selfyssinga, en í liði KA/Þórs var Nathalia Soares Baliana atkvæðamest með þrjú mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×