Erlent

Starfs­menn flóttamannaaðstoðarinnar hafi verið reknir án sönnunar­gagna

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Hann segir ákvörðunina hafa verið tekna án eðlilegrar málsmeðferðar vegna eðlis ásakananna á hendur þeim.
Hann segir ákvörðunina hafa verið tekna án eðlilegrar málsmeðferðar vegna eðlis ásakananna á hendur þeim. EPA/Salvatore di Nolfi

Philippe Lazzarini yfirmaður Palestínuflóttamannaaðstoðarinnar segist hafa rekið starfsmenn sem sakaðir voru um hollustu við Hamas án nokkurra sönnunargagna og án þess að hafa rannsakað ásakanirnar á hendur þeim.

Á blaðamannafundi sem haldinn var í Jerúsalem á föstudaginn var hann spurður hvort hann hefði gögn við hendi varðandi ásakanir Ísraela og svaraði hann því neitandi. Hann bætti við að rannsóknin væri yfirstandandi. Hann lýsti ákvörðun sinni sem „öfugri eðlilegri málsmeðferð.“ Guardian greinir frá.

„Ég hefði getað vikið þeim tímabundið úr starf, en ég rak þá. Og nú er rannsókn í gangi og ef rannsóknin sýnir fram á að ákvörðunin hafi verið röng, þá munum við í Sameinuðu þjóðunum taka ákvörðun um hvernig eigi að bæta þeim þetta.“

Umfangsmiklar ásakanir

Hann segist hafa tekið ákvörðun um leið og ásakanirnar bárust vegna þess hve alvarlegar þær voru. Stofnunin hafi þurft að glíma við harðar árásir.

Ísraelsmenn hafa haldið því fram að allt að einum tíunda starfsmanna samtakanna séu hliðhollir Hamasliðum og vilja leysa samtökin upp. Yfirvöld í Tel Avív hafa sakað tugi starfsmanna þeirra um þátttöku í árásum Hamasliða á Ísrael sem leiddi til dauða rúmlega tólfhundruð manns.

Um 28 þúsund hafa látið lífið í árásum á Gasasvæðinu þar á meðal tveir hinna ásökuðu.AP/Mohammed Hajjar

Utanríkisráðuneyti Ísraels upplýsti Lazzarini um áskanirnar þann átjánda janúar og voru níu þeirra tólf sem sakaðir voru um aðild reknir á staðnum. Tveir þeirra höfðu þegar látist í loftárásum Ísraels.

Í kjölfarið frystu fjölmörg lönd greiðslur til samtakanna, þar á meðal Ísland.

UNRWA hafi engan aðgang að gögnunum

Lazzarini segir talsmenn ísraelska yfirvalda hafa lesið upp nöfn hinna ásökuðu, ásamt ítarlegum lýsingum á eðli þátttöku þeirra í árásum Hamasliða. UNRWA hafi þó ekki verið veitt eintak af skjölunum.

Hann segir ísraelsk yfirvöld þó ekki hafa hreyft mótbárum þegar nöfn einstaklinganna voru lögð fram til skoðunar á síðasta árum eins og gert er með alla starfsmenn flóttamannaaðstoðarinnar.

António Guterres aðalritari Sameinuðu þjóðanna hefur komið ákvörðun Lazzarini til varnar og segir gögn Ísraelsmanna trúverðug.

„Við gátum ekki tekið áhættuna á því að bregðast ekki strax við þar sem ásakanirnar vörðuðu glæpsamlegt athæfi,“ segir Guterres á fimmtudag.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×