Erlent

Tala látinna komin yfir þrjá­tíu þúsund

Árni Sæberg skrifar
Palestínumenn syrgja fallna samlanda sína við Al Aqsa spítalann í Deir al Balah í dag.
Palestínumenn syrgja fallna samlanda sína við Al Aqsa spítalann í Deir al Balah í dag. AP Photo/Adel Hana

Ríflega þrjátíu þúsund hafa látist frá upphafi stríðs Ísraels og Hamas-samtakanna þann 7. október síðastliðinn. Ríflega hundrað eru sagðir hafa látist í árás Ísraelshers á hóp fólks sem beið eftir hjálpargögnum í nótt.

Þetta hefur AP-fréttaveitan eftir heilbrigðisyfirvöldum á Gasa. Í frétt AP segir að ríflega eitt hundrað manns hafi látið lífið í Gasaborg í dag þegar Ísraelskir hermenn hófu skothríð á hóp fólks sem hópast hafði saman í von um að fá hjálpargögn.

Starfsmenn sjúkrahúss í borginni hafi upphaflega tilkynnt að gerð hefði verið loftárás á hópinn en vitni hafi síðast lýst því að hermenn á jörðu niðri hafi hafið skothríð á hópinn þegar fólk reyndi að ná hveitipokum og dósamat af flutningabílum.

Ísraelsher varð ekki við beiðni AP um yfirlýsingu um þátt hermannanna í atvikinu.

Fjórðungur íbúa standi frammi fyrir hungursneyð

Í gær var greint frá því að flutningabílar með hjálpargögnum hefðu komist inn á Gasa í vikunni í fyrsta skipti í heilan mánuð. Hjálparstofnanir hafa sagt það nánast ógerning að koma hjálpargögnum inn á svæðið.

Sameinuðu þjóðirnar hafa gefið það út að allt að fjórðungur íbúa Gasa standi frammi fyrir alvarlegri hungursneyð.

AP hefur eftir Kamel Abu Nahel, íbúa á Gasa sem verið var að hlúa að vegna skotsárs á Shifa spítalanum, að hann hafi farið ásamt fleirum að stað þar sem hjálpargögnum er dreift um miðja nótt, þar sem hann hafði heyrt að þar væri matur í boði. „Við höfum borðað dýrafóður í tvo mánuði.“

Ísraelskir hermenn hafi skotið að hópnum, sem hafi dreift úr sér og sumir falið sig undir bílum. Þegar hópurinn hafi farið aftur ð flutningabílnum hafi hermennirnir hafið skothríð á ný. Hann hafi verið skotinn í fótlegginn.

Fólk hafi látist í troðningi

Ísraelsher hefur birt myndskeið, sem sagt er sýna hóp Palestínumanna hópast í kringum flutningabíl með hjálpargögnum. Herinn segir fjölda fólks hafa látist í troðningi vegna þessa.

„Palestínskur múgur réðst að flutningabílunum og í kjölfarið tróðust tugir undir og létust,“ sagði í yfirlýsingu hersins í dag. Myndskeiðið má sjá hér að neðan:


Tengdar fréttir

Við­ræður um fanga­skipti og vopna­hlé mjakast á­fram

Joe Biden Bandaríkjaforseti sagðist í gær telja að samkomulag um vopnahlé og lausn gísla í haldi Hamas myndi mögulega liggja fyrir eftir um það bil viku. „Við erum nálægt því. Við erum ekki búin ennþá. Ég vona að á mánudag verði vopnahlé í höfn,“ sagði forsetinn.

Ný tilraun til vopnahlésviðræðna um helgina

Sendinefnd frá Ísrael mun taka þátt í vopnahlésviðræðum í París um helgina ásamt fulltrúum Bandaríkjanna, Katar og Egyptalands. Viðræðuefni verði ásamt vopnahlé frelsun ísraelskra gísla á Gasasvæðinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×