Innlent

„Mér brá auð­vitað við þegar þetta kom upp“

Jón Þór Stefánsson skrifar
Birgir Ármansson, forseti Alþingis, segir þingmenn finna fyrir breyttu umhverfu.
Birgir Ármansson, forseti Alþingis, segir þingmenn finna fyrir breyttu umhverfu. Vilhelm/Ásmundur Friðriksson

Birgir Ármansson, forseti Alþingis, segir tilefni til þess að skoða og endurmeta öryggismál á Alþingi í kjölfar atviks sem átti sér stað í dag þar sem lögregla og þingverðir þurftu að fjarlægja mann af þingpöllum Alþingis sem steig yfir handriði þeirra og öskraði að þingmönnum.

„Mér brá auðvitað við þegar þetta kom upp. Það sama á held ég við um þá þingmenn sem voru í salnum. Það er auðvitað óþægilegt þegar svona uppákomur verða en hins vegar tókst þingvörðum og lögreglu sem var þarna á svæðinu að ná stjórn á atburðarásinni mjög hratt þannig þetta var ekki langur tími sem leið þangað til að komin var ró,“ sagði Birgir í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Atvikið átti sér stað þegar Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra var í pontu nýbyrjuð að mæla fyrir útlendingafrumvarpi sínu.

Birgir segir að fyrst hafi verið gert fimm mínútna hlið á þingfundi vegna atviksins og það hafi síðan verið framlengt um tíu mínútur svo þingmenn gætu náð áttum.

Birgir segir að atvikið sé þess eðlis að skoða verði öryggismál á þinginu, sem séu þó í stöðugri skoðun.

„Við erum auðvitað í þeirri stöðu að það þarf að meta öryggismál hér á þinginu eiginlega frá degi til dags. Það fólk hjá skrifstofu Alþingis sem sér um þau mál er í nánu sambandi við lögreglu um hvernig það sé gert. Uppákomur af þessu tagi gera það auðvitað að verkum að það þarf að fara yfir hlutina.“

Aðspurður út í önnur álíka atvik sem hafa átt sér stað undanfarið, líkt og þegar glimmeri var kastað yfir Bjarna Benediktsson utanríkisráðherra og snjóboltakasti í bíl Diljár Mistar Einarsdóttur þingmanns, segir Birgir: „Ég held að þingmenn almennt talað verða varir við breytt umhverfi. Þetta hefur komið svona í bylgjum í gegnum árin. Stundum er ólóleiki í kringum þingið, jafnvel þannig að fólk hefur fundist sér ógnað, en stundum er rólegra. Undanfarnar vikur hafa komið upp nokkur tilvik sem gefa okkur tilefni til að fara yfir stöðuna og endurmeta aðstæður. Og í framhaldi af þessu máli munum við auðvitað gera það.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×