Innlent

Þingpallarnir opnir eins og aðra daga

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þingvörður reynir að fjarlægja karlmanninn af þingpöllunum.
Þingvörður reynir að fjarlægja karlmanninn af þingpöllunum. Ásmundur Friðriksson

Skrifstofustjóri Alþingis segir þingpallana opna á Alþingi í dag eins og kveðið sé á um í stjórnarskránni þrátt fyrir óþægilegt atvik síðdegis í gær. Þá þurfti að fjarlægja hælisleitendur af pöllunum sem trufluðu þingstörf.

Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, ávarpaði þingið í upphafi fundar klukkan 13:30 í dag vegna atviksins. Þá byrjaði hælisleitandi á þingpöllunum að kalla á Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra þar sem hún var nýbyrjuð að mæla fyrir útlendingafrumvarpi sínu. Var maðurinn fjarlægður ásamt tveimur til viðbótar.

Þar sagði hann að samkvæmt stjórnarskrárlögum væri Alþingi friðheilagt og engin mætti raska friði þess eða frelsi.

„Þingfundir eru haldnir í heyranda hljóði og almenningur getur fylgst með störfum þess. Það er mikilvægur liður í þeirri lýðræðislegu skipan sem við búum við,“ sagði Birgir.

„Í því felst hins vegar ekki réttur til að trufla starfsemi þingsins eða raska með öðrum hætti störfum þess.“

Birgir sagði öryggismál sem varði þingið og þingmenn að sjálfsögðu stöðugt til skoðunar og endurmats. Atvik sem komi upp hafi að sjálfsögðu áhrif á það mat. Dæmi um það sé atvikið í gær.

„Það verður farið vel yfir verklag og öryggisráðstafanir sem tilefni er til að gera af því tilefni,“ sagði Birgir. Hann væri í góðu samtali við starfsmenn þingsins sem beri ábyrgð á öryggismálum og lögreglu.

Ragna Árnadóttir er skrifstofustjóri Alþingis.Vísir/Vilhelm

Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri Alþingis, sagði í raun og veru ekkert breytt eftir atburði gærdagsins. Stöðugt samtal eigi sér einfaldlega stað milli lögreglu og Alþingis þegar komi að lögregluráðstöfunum. Lögregla fjarlægði manninn í gær en fram kom í frétt Mbl.is að hann hefði ekki verið handtekinn heldur komið í viðeigandi úrræði.

Ragna segir þingpallana opna í dag eins og aðra daga. Tveir lögreglumenn séu á vakt eins og sé allajafna þegar þingið er við störf. Tveir lögreglumenn hafa verið á slíkri vakt síðan þingið gerði samstarfs- og þjónustusamning við ríkislögreglustjóra fyrir um tveimur árum.


Tengdar fréttir

„Mér brá auðvitað við þegar þetta kom upp“

Birgir Ármansson, forseti Alþingis, segir tilefni til þess að skoða og endurmeta öryggismál á Alþingi í kjölfar atviks sem átti sér stað í dag þar sem lögregla og þingverðir þurftu að fjarlægja mann af þingpöllum Alþingis sem steig yfir handriði þeirra og öskraði að þingmönnum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×