Innlent

Segjast styðja manninn sem hafi gripið til ör­þrifa­ráða

Jón Þór Stefánsson skrifar
No Border segjast styðja mótmæli mannsins.
No Border segjast styðja mótmæli mannsins. Ásmundur Friðriksson

Samtökin No Borders á Íslandi segjast styðja mann sem fór yfir handrið þingpallanna á Alþingi síðastliðinn mánudag og öskraði á Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra á meðan hún var að mæla fyrir útlendingafrumvarpi sínu. Þingverðir og lögregla skárust í leikinn og fjarlægðu manninn.

Í yfirlýsingu No Borders segjast samtökin styðja mótmæli mannsins tvímælalaust. Samtökin héldu mótmæli við Austurvöll sama dag og umrætt atvik átti sér stað, en þar var útlendingafrumvarpi Guðrúnar mótmælt.

„Grimm stefna ríkisstjórnar í útlendingamálum skapar slíka neyð og örvæntingu að grípa verður til örþrifaráða,“ segir í yfirlýsingunni þar sem að frumvarp Guðrúnar er gagnrýnt. „Frumvarpið felur í sér gríðarlega skerðingu á réttindum fólks á flótta og einkennist af afmennskun og aukinni jaðarsetningu þess.“

Jafnframt er fullyrt að áform ríkisvaldsins séu knúin áfram að kerfislægum rasisma og hvítri yfirburðahyggju. Um mótmælandann, sem er flóttamaður, segir að hann tilheyri hópi fólks sem var vísað á götuna í ágúst og nú sé hann búsettur í neyðarskýli Rauða krossins.

„Þar dvelur á þriðja tug manns, gjörsamlega réttindalaust og án aðgengis að heilbrigðisþjónustu. Öryggismyndavélar eru á öllum stöðum og fylgjast með hverju fótmáli. Sturtuaðstaðan er í gámum fyrir utan húsið. Þeim ber skylda að yfirgefa húsnæðið frá kl. 10 til kl 17 þó þau hafi í engin hús að venda. Börnum er meinað um að dvelja í neyðarskýlinu og hefur móður á flótta verið vísað á götuna ásamt 18 mánaða gömlu barni sínu,“ segir í yfirlýsingunni.

Birgir Ármansson, forseti Alþingis, sagði í kjölfar atviksins á þingpöllunum að tilefni væri til að endurmeta öryggismál á þingi.

„Mér brá auðvitað við þegar þetta kom upp. Það sama á held ég við um þá þingmenn sem voru í salnum. Það er auðvitað óþægilegt þegar svona uppákomur verða en hins vegar tókst þingvörðum og lögreglu sem var þarna á svæðinu að ná stjórn á atburðarásinni mjög hratt þannig þetta var ekki langur tími sem leið þangað til að komin var ró,“ sagði Birgir við fréttastofu.

Daginn eftir atvikið kom fram að maðurinn hefði verið látinn laus út haldi lögreglu að loknum yfirheyrslum. Ekki liggur fyrir hvort hann verði sektaður eða ákærður vegna atviksins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×