Erlent

Banda­ríkja­menn hyggjast reisa bráða­birgða­höfn á Gasa

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Biden greindi frá bryggjuáformunum í stefnuræðu sinni í gær en staðan á Gasa er farin að vera honum fjötur um fót í kosningabaráttunni fyrir forsetakosningarnar.
Biden greindi frá bryggjuáformunum í stefnuræðu sinni í gær en staðan á Gasa er farin að vera honum fjötur um fót í kosningabaráttunni fyrir forsetakosningarnar. Getty/Chip Somodevilla

Bandaríkjamenn hyggjast reisa tímabundna höfn við strendur Gasa til að greiða fyrir umfangsmiklum flutningum neyðargagna til svæðisins. Frá þessu greindi Joe Biden Bandaríkjaforseti í stefnuræðu sinni í gær.

Biden sagði Bandaríkjamenn myndu leiða mannúðaraðgerðir á svæðinu og hefja byggingu hafnar þar sem stór skip gætu lagt að með vatn, matvæli, lyf og tímabundið skjól. Forsetinn hét því að hermenn Bandaríkjanna myndu ekki fara inn á svæðið.

Þá sagði hann Ísraelsmenn þurfa að axla ábyrgð.

„Við leiðtoga Ísrael segi ég þetta: Mannúðaraðstoð má ekki vera í öðru sæti eða notuð sem vogarafl í samningaviðræðum. Það verður að vera forgangsmál að standa vörð um og bjarga saklausum lífum.“

Guardian segir að svo virðist sem ákvörðunin um að opna eigin höfn hafi verið tekin vegna óánægju stjórnvalda vestanhafs með aðgerðaleysi Ísraela í mannúðarmálum. „Við ætlum ekki að bíða eftir Ísraelsmönnunum. Þetta er stund fyrir Bandaríkin að taka forystu,“ er haft eftir ónafngreindum embættismanni.

Sérfræðingar hafa fagnað fréttunum en óttast að framkvæmdin muni taka of langan tíma og segja að það hefði verið skilvirkara að fá Ísraelsmenn til að opna fleiri landleiðir inn á Gasa.

Samkvæmt heimildarmönnum verður bryggjan reist af verkfræðingum sem munu starfa frá skipum undan ströndinni. Hermenn Bandaríkjanna munu þannig ekki þurfa að stíga á land heldur verður öllu sinnt frá hafi.

Neyðargögnin verða flutt um borð í Larnaca á Kýpur og flutt þaðan til Gasa. Ísraelsmenn munu geta skoðað farminn áður en hann leggur úr höfn í Larnaca.

Von er á sameiginlegri tilkynningu frá öðrum ríkjum og hjálparsamtökum sem munu koma að málum en Sameinuðu arabísku furstadæmin eru sögð meðal þeirra.

Ítarlega umfjöllun um málið má finna hjá Guardian.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×