Íslenski boltinn

Mættur í stærsta fé­lag Ís­lands og vill hjálpa KR að vinna titla

Runólfur Trausti Þórhallsson og Valur Páll Eiríksson skrifa
Axel Óskar er mættur í Vesturbæinn.
Axel Óskar er mættur í Vesturbæinn. Vísir/Ívar Fannar

„Að fá að spila fyrir stærsta félag Íslands. Flestir titlar, sagan segir sitt. Ég er mjög sáttur að vera kominn hingað,“ sagði Axel Óskar Andrésson, nýjasti leikmaður KR í Bestu deild karla í knattspyrnu. Hann var eftirsóttur en valdi á endanum KR og stefnir á að sýna landi og þjóð hvað hann getur í sumar.

„Það voru nokkur lið í myndinni hér á landi sem og lið úti. Það voru lið sem voru kannski örlítið of langt frá. Ég á sex mánaða dóttur núna og maður þarf aðeins að hugsa um fjölskyldulífið líka. Þetta var besta lendingin og ég er ótrúlega spenntur fyrir komandi tímum hjá KR.“

„Það var mikið af þreifingum og ég var ekki alveg að detta inn á eitthvað úti Svo höfðu KR-ingarnir samband og mér leist vel á það. Gaman að keyra á þetta á Íslandi og spila með stærsta félagi Íslands.“

„Þeir eru búnir að ná í hörku leikmenn. Alex (Þór Hauksson), Aron (Sigurðarson) og alla þessa stráka. Liðið sjálft er ótrúlega flott. Það heillaði að koma og reyna hjálpa þessum sögufræga klúbbi að vinna titla aftur,“ sagði Axel Óskar aðspurður af hverju hann væri kominn í KR.

„Búið í fimm löndum og spilað fyrir sjö lið“

Hinn 26 ára gamli Axel Óskar fór ungur að árum til Reading á Englandi. Þaðan lá leiðin til Noregs og svo Lettlands áður en hann endaði í Svíþjóð. Lið í Eystrasaltslöndunum voru áhugasöm en þau hentuðu einfaldlega ekki þar sem Axel Óskar þarf einnig að hugsa um hvað er best fyrir fjölskylduna. Hann er þó sáttur með tíma sinn í atvinnumennsku.

„Hann hefur verið frábær, ótrúlega mikil reynsla. Maður hefur búið í fimm löndum og spilað fyrir sjö lið. Það verður kannski smá skrítið að búa aftur á Íslandi, maður er orðinn smá útlendingur núna. Það er bara gaman og hlakka ótrúlega til komandi tíma.“

Klippa: Axel Óskar: Mættur í stærsta fé­lag Ís­lands og vill hjálpa KR að vinna titla

Axel Óskar átti erfitt með að nefna eitthvað eitt sem hefur staðið upp úr á ferlinum til þessa en tók þó fram að England og sá fótbolti sem er spilaður þar henti sér frá A til Ö. 

Hann mun eflaust heimsækja landið eitthvað á komandi misserum en bróðir hans, markvörðurinn Jökull Andrésson, er enn leikmaður Reading. Axel Óskar var sjálfur bara táningur þegar hann fór til Reading.

„Það var æðislegt. Ekki skemmdi fyrir að öll fjölskyldan fór með út, tveir litlir bræður og mamma og pabbi. Þetta var ótrúlegur tími og að vera þar í sex ár var ótrúlega gaman, svo tók fótboltaferillinn við.“

Gregg Ryder mun stýra KR í sumar en hann er frá Englandi. Axel Óskar játti því að það hafi haft áhrif á ákvörðun hans.

„Leist langbest á KR“

„Að sjálfsögðu. Frá fyrsta fundi með Gregg leist mér ótrúlega vel á verkefnið og hvernig hann er búinn að setja upp verkefnið. Er búinn að æfa tvisvar (með liðinu), mánuður til stefnu. Stutt í mót, hef samt engar áhyggjur að ég komi mér ekki í gott stand og get ekki beðið eftir að æfa með þessum fagmönnum.“

„Markmiðið er alltaf að spila á sem hæstu getustigi. Ef það kemur upp í framtíðinni að fara aftur út og það er í fínu landi upp á fjölskylduaðstæður að gera þá er ég opinn fyrir því að spila á eins háu getustigi og hægt er. Að þessu sinni leist mér langbest á KR.“

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum ofar í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×