Erlent

Boeing-uppljóstrari fannst látinn í miðjum mála­ferlum

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
John Barnett leitaði til fjölmiðla árið 2019 og ljóstraði upp um galla í Boeing 787 Dreamliner flugvélunum.
John Barnett leitaði til fjölmiðla árið 2019 og ljóstraði upp um galla í Boeing 787 Dreamliner flugvélunum. Getty/Alexi Rosenfeld

Fyrrverandi starfsmaður flugvélaframleiðandans Boeing, sem ljóstraði upp um galla í framleiðslu flugvéla Boeing, fannst látinn í Bandaríkjunum. Dagana fyrir andlátið hafði hann borið vitni fyrir dómi gegn framleiðandanum. 

John Barnett starfaði fyrir Boeing í 32 ár áður en hann settist í helgan stein árið 2017. Barnett var 62 ára gamall þegar hann lést en samkvæmt upplýsingum frá lögregluyfirvöldum í Charleston sýslu lést hann af sárum, sem hann veitti sjálfum sér, á laugardag. Lögregla hefur andlát hans nú til rannsóknar. 

Barnett þurfti að láta af störfum hjá Boeing árið 2017 vegna heilsufarsástæðna en frá árinu 2010 hafði hann starfað sem gæðastjóri í verksmiðju Boeing í áðurnefndri Charleston í Suður-Karólínu. 

Barnett steig fram í viðtali við breska ríkisútvarpið árið 2019 þar sem hann greindi frá því að galli í súrefniskerfi 787 Dreamliner-vélanna gæti leitt til súrefnisskorts á meðal flugfarþega, félli þrýstingur skyndilega í farþegarýminu. 

Prófanir hafi sýnt að allt að fjórðungur kerfanna sé gallaður og gæti því mögulega ekki virkað þegar þörf væri á. Hann sagði jafnframt í viðtalinu að gallaðir hlutir væru vísvitandi settir í Boeing-vélar í einni af verksmiðjum fyrirtækisins. 

Boeing þvertók fyrir ásakanir Barnetts en í kjölfar úttektar flugmálastjórnar Bandaríkjanna tók hún undir þó nokkrar áhyggjur Barnetts. 

Í kjölfar þess að Barnett settist í helgan stein ákvað hann að fara í meiðyrðamál við flugvélafrmaleiðandann. Hann sakaði Boeing bæði um meiðyrði og um að hafa hindrað framgang hans í starfi vegna athugasemda sem hann gerði við öryggismál í framleiðsluferlinu. Boeing neitaði öllum ásökunum Barnetts. 

Barnett hafði dagana fyrir andlát sitt verið í Charleston vegna aðalmeðferðar í máli hans gegn Boeing. Í síðustu viku bar hann vitni fyrir dómi og átti að halda því áfram á laugardag. Samkvæmt frétt BBC mætti Barnett ekki á tilsettum tíma í dómsal og lögregla sent viðbragð á hóteli hans. Hann hafi fundist í bíl sínum fyrir utan hótelið. 

Boeing gaf út yfirlýsingu í dag þar sem það sagðist harma dauða Barnetts og sendi aðstandendum hans samúðarkveðjur.


Tengdar fréttir

Fimm­tíu slasaðir eftir að Boeing-vél „féll“ í miðju flugi

Fimmtíu manns þurftu aðhlynningu og þrettán voru lagðir inn á sjúkrahús eftir að „tæknilegir örðugleikar“ komu upp í flugi Latam Airlines frá Sydney til Auckland sem urðu þess valdandi að flugvélin „féll“ og farþegar hentust úr sætum sínum.

Framhjól Boeing 757 féll af flugvélinni

Framhjól á Boeing 757 farþegaþotu í eigu bandaríska flugfélagsins Delta féll af þotunni á alþjóðaflugvellinum í Atlanta í Bandaríkjunum á laugardag skömmu fyrir ætlað flugtak.

Lausir skrúfboltar í vélum Boeing

Skrúfboltar sem herða þurfti betur hafa fundist við skoðun á Boeing 737 Max 9 flugvélum. Flugfélagið United Airlines greinir frá þessu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×