Innlent

Spyr hvers vegna maðurinn sé enn hér á landi

Bjarki Sigurðsson skrifar
Helgi Magnús Gunnarsson er vararíkissaksóknari.
Helgi Magnús Gunnarsson er vararíkissaksóknari. Vísir/Arnar

Maðurinn sem er í haldi lögreglu vegna stunguárásar í Valshverfinu hefur staðið í hótunum við fjölda aðila síðustu ár. Vararíkissaksóknari, sem er eitt af fórnarlömbum mannsins, spyr hvers vegna maðurinn sé enn hér á landi.

Þrítugur maður var í síðustu viku úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna stunguárásar í verslun OK Market í Valshverfinu í Reykjavík.

Hann hafði áreitt og hótað eiganda verslunarinnar í sex ár fram að árásinni en að sögn eigandans hófust ofsóknirnar þegar hann túlkaði hjá lögreglu fyrir einstakling sem kærði árásarmanninn. Af ótta við manninn hefur hann sent fjölskyldu sína úr landi en hann telur að árásunum muni ekki linna þegar manninum verður sleppt úr haldi.

Hótað að drepa fjölskylduna

Maðurinn hefur staðið í hótunum við fleiri einstaklinga síðan hann kom hingað til lands árið 2018 frá Sýrlandi með alþjóðlega vernd. Meðal þeirra er Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari.

„Stór hluti af þessum póstum er alls konar fordæming á öllu hér á Íslandi. Kerfinu, það fari illa með hann og eitthvað slíkt. Svo er hann að hóta að drepa mig og drepa fjölskylduna mína. Beint og óbeint með alls konar útfærslum,“ segir Helgi.

Tekur enga sénsa

Hótanirnar gegn Helga hófust þegar hann í starfi sínu staðfesti niðurfellingu lögreglunnar á máli sem maðurinn hafði kært. Maðurinn hefur mætt á skrifstofu Helga og fékk dóm fyrir hótanir sem hann hafði uppi þar.

„Maður getur ekki annað en að taka þessu alvarlega og maður sér það núna að maður hafði fulla ástæðu til þess. Hann hafði feril af ofbeldi og sakfelldur fyrir ofbeldisverk. Auðvitað tekur þú engan séns með fjölskylduna þína. Mér er alveg sama, ég get tekist á við hann en ekki fjölskyldan mín ef hann myndi birtast þar. En hann hefur ekki gert það, að koma heim til okkar,“ segir Helgi.

Vill að honum sé vísað úr landi

Sakaferill mannsins er langur og fjölbreyttur. Lögregla hefur haft rúmlega níutíu mál til meðferðar þar sem maðurinn kemur við sögu. Helgi segist alltaf vera á varðbergi þegar maðurinn er laus og spyr sig hvers vegna maðurinn er enn hér á landi.

„Ég meina, við erum að veita fólki aðstoð á grundvelli mannúðar því fólk er í neyð. Ef þú gengur svo hér um á skítugum skónum, eins og þessi maður hefur gert, og ert í raun að spilla því sem við höfum talið okkur mest til tekna, að lifa í öruggu samfélagi þá eigum við bara að vísa honum burtu. Við getum valið þessa vandræðamenn úr og losað okkur við þá og eigum að gera það,“ segir Helgi.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×