Erlent

Hungrinu beitt sem vopni segir utan­ríkis­mála­stjóri ESB

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Íbúar á Gasa freista þess að ná sér í mat í Rafah.
Íbúar á Gasa freista þess að ná sér í mat í Rafah. AP/Fatima Shbair

Josep Borrell, framkvæmdastjóri utanríkismála hjá Evrópusambandinu, segir hungursneyð beitt eins og vopni á Gasa. Hann segir skort á neyðargögnum á svæðinu  „manngerðan harmleik“.

Flutningaskip með 200 tonn af matvælum og öðrum neyðargögnum lagði úr höfn í Kýpur í gær en Sameinuðu þjóðirnar segja það ekki koma í staðinn fyrir flutning neyðargagna landleiðina.

Þrátt fyrir aukna gagnrýni fjölda ríkja hafa stjórnvöld í Ísrael hins vegar lítið gert til að greiða fyrir aukinni aðstoð við almenna borgara á Gasa og heitið því að halda áfram aðgerðum sínum gegn Hamas.

Þau hafna því að vera ábyrg fyrir matarskorti á svæðinu, þar sem þau heimili nú þegar flutning matvæla í gegnum tvö landamærahlið í suðurhluta Gasa.

Borrell svaraði þessu þegar hann ávarpaði Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna í New York í gær og sagði mannúðarkrísuna mega rekja til þess að það væru ekki fleiri landleiðir til staðar til að flytja gögn inn á Gasa.

„Við erum núna að horfa upp á samfélag sem berst fyrir því að lifa af,“ sagði hann.

Hann sagði vandann gerðan af mannanna höndum og að ástæða þess að menn væru að leita leiða til að koma neyðargögnum til Gasa sjó- og loftleiðina væri að landleiðinni hefði verið lokað.

„Það er verið að nota hungur sem vopn og þegar við fordæmum það þegar það gerist í Úkraínu þá verðum við að nota sömu orð um það sem er að gerast á Gasa,“ sagði Borrell.

Sameinuðu þjóðirnar hafa varað við því að um 576 þúsund manns á Gasa séu við það að búa við hungursneyð. Heilbrigðisráðuneytið á svæðinu segir 27 hafa látist sökum vannæringar og ofþornunar á síðustu tveimur vikum.

Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, sagðist um helgina gera ráð fyrir að átökin myndu standa yfir allt að tvo mánuði í viðbót; kannski fjórar vikur, kannski sex.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×