Erlent

Landsnefndin notuð til að borga lögfræðikostnað

Samúel Karl Ólason skrifar
Donald Trump á mun minna af peningum í kosningasjóðum sínum en Joe Biden og ver miklum fjármunum í lögfræðiskostnað.
Donald Trump á mun minna af peningum í kosningasjóðum sínum en Joe Biden og ver miklum fjármunum í lögfræðiskostnað. AP/Mike Stewart

Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, hefur gert nýtt fjáröflunarsamkomulag við Landsnefnd Repúblikanaflokksins (RNC). Það samkomulag felur í sér að fjármunir sem RNC safnar fara í pólitískan aðgerðasjóð Trumps til að borga lögfræðikostnað hans.

Trump hefur tekið yfir stjórn landsnefndarinnar, sagt upp fjölda fólks og nú hefur tengdadóttir hans tekið fyrir stjórn hennar.

AP fréttaveitan segir innanbúðarmenn í Repúblikanaflokknum hafa áhyggjur af því hvað þessar breytingar og yfirtaka Trumps á landsnefndinni muni hafa. Bæði Landsnefnd Repúblikanaflokksins og margar undirdeildir innan tiltekinna ríkja hafa átt í fjárhagsvandræðum á undanförnum árum.

Forsetaframbjóðandinn hefur boðið auðugum bakhjörlum Repúblikanaflokksins til Flórída í byrjun apríl á fjáröflunarviðburð. Í smáa letri boðskotranna segir að af öllum þeim fjárveitingum sem auðjöfrarnir heita RNC fari peningarnir fyrst til tveggja aðgerðanefnda Trumps.

Þær taki þær upphæðir sem lögin leyfa af fjárveitingunum eða 6.600 dalir í þann fyrsta og fimm þúsund í þann seinni og RNC og ríkjanefndir Repúblikana fái svo rest, verði eitthvað eftir, samkvæmt frétt New York Times.

Á undanförnum tveimur árum hefur Trump greitt lögmönnum sínum að minnsta kosti 76 milljónir dala. Það samsvarar um 10,5 milljörðum króna.

Þessar pólitísku aðgerðanefndir (e. Super PAC) kallast Trump 47 Committee og Save America.

Sú síðarnefnda er skráð á þann veg að meirihluta þeirra peninga sem safnast þar má ekki verja með beinum hætti til kosningabaráttu. Um 85 prósent af útgjöldum Save America á fyrstu tveimur mánuðum ársins, eða um 8,5 milljónir dala fóru í lögfræðikostnað. Allt síðasta ár var hlutfallið um 89 prósent.

Bilið breikkaði í febrúar

Trump þarf á auknum fjármunum að halda. Í yfirlýsingum til kosningayfirvalda Bandaríkjanna í vikunni kom fram að Joe Biden situr á mun meiri peningum en Trump. Biden á 71 milljón dala í kosningasjóðum sínum, fyrir utan aðgerðanefndir, og Trump á 33,5 milljónir.

Í lok janúar átti Biden 56 milljónir og Trump 30,5 þannig að bilið milli þeirra breikkaði í febrúar.

Sjá einnig: Biden situr á digrum sjóðum en Trump ver fúlgum í lögmenn

Einnig kom fram í gögnunum sem opinberuð voru í vikunni að Save America, áðurnefnd aðgerðanefnd sem Trump notar til að borga lögfræðiskostnaði sinn, eyddi meiri peningum en söfnuðust í febrúar. Nefndin eyddi sjö milljónum dala og þar af 5,6 í lögfræðikostnað í febrúar.


Tengdar fréttir

Dómarinn í skjalamálinu harðlega gagnrýndur

Lögmenn og fyrrverandi dómarar hafa lýst yfir mikilli furðu á skipun sem dómarinn í skjalamáli Trumps svokölluðu gaf út í vikunni. Telja þeir aðgerðir dómarans gefa til kynna að réttarhöldin gegn Trump fyrir að taka með sér opinber og leynileg skjöl þegar hann flutti úr Hvíta húsinu og neita að afhenda þau, muni ekki fara fram í bráð.

Getur ekki lagt fram trygginguna og biðlar til dóm­stóla um miskunn

Lögmenn Donald Trump segja forsetann fyrrverandi hafa komið að lokuðum dyrum hjá 30 fyrirtækjum sem sérhæfa sig í að veita tryggingu í dómsmálum. Þeir segja hann þannig ekki munu geta lagt fram þá 454 milljón dala tryggingu sem hefur verið krafist.

Líkti innflytjendum við dýr í langri ræðu

Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og forsetaframbjóðandi, hélt í gær kosningaræðu þar sem hann talaði með niðrandi hætti um farand- og flóttafólk og hét efnahagslegu „blóðbaði“ ef hann skyldi tapa forsetakosningunum í nóvember.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×