Erlent

Stór­mál fari Ísrael ekki eftir á­lyktun öryggis­ráðsins

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Þórdís Ingadóttir, prófessor við lagadeild HR.
Þórdís Ingadóttir, prófessor við lagadeild HR.

Prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík segir ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé á Gasa marka vatnaskil. Ísraelar færu gegn stofnsáttmála SÞ með því að lúta ekki ályktuninni. Hún telur ólíklegt að Hamas sleppi gíslunum, eins og ályktunin kveður á um.

Örygg­is­ráð Sam­einuðu þjóðanna samþykkti í dag til­lögu um taf­ar­laust vopna­hlé á Gasa. Samkvæmt henni á vopnahléð að hefjast nú þegar og standa yfir Ramadan, föstumánuð múslima sem lýkur 9. apríl. Einnig er gerð sú krafa að Hamas-liðar sleppi öllum gíslum og að opnað verði enn frekar fyrir flæði hjálpargagna inn á svæðið.

Bandaríkin sátu hjá í atkvæðagreiðslunni en þau hafa hingað til beitt neitunarvaldi gegn sambærilegum tillögum. Þó svo að krafan um vopnahlé gildi aðeins í um tvær vikur segir í ályktuninni að vonir standi til þess að það leiði til varanlegra vopnahlés.

Ísraelar brugðust illa við ályktuninni og fyrirhugaðri heimsókn Benjamíns Netnanjahú forsætisráðherra til Washington var umsvifalaust aflýst. Fulltrúi Mósambík í öryggisráðinu segir niðurstöðuna sögulega.

„Það er von okkar að ályktunin sem samþykkt var í dag verði innleidd í góðri trú af öllum málsaðilum og verði til þess að lina þjáningar Gasabúa. Við vonum einnig að þessi ályktun muni opna leið fyrir jákvæðari sjónarmið varðandi varanlegan frið í Mið-Austurlöndum,“ sagði Pedro Comissário Afonso, fulltrúi Mósambík.

Afdráttarlaus ályktun

Þórdís Ingadóttir, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, segir um vatnaskil í átökunum að ræða. 

„Og augljóslega mjög þýðingarmikið. Ísrael hefur beitt rétti sínum til sjálfsvarnar eftir árás Hamas í október. Nú er það þannig að rétt eins og í landsrétti að ef þú beitir neyðarvörn, þú mátt gera það þar til lögreglan mætir. Öryggisráðið hefur það vald, samkvæmt sáttmála Sameinuðu þjóðanna, þeir mega bregðast við. Þeir hafa gert það núna, svo í raun þá ber öllum aðildarríkjum að fylgja þessu,“ segir Þórdís.

Hún segir að drög að ályktuninni hafi verið mjög afdráttarlaus, þannig að Ísraelsmenn yrðu að bregðast við. Þrátt fyrir það væri ekki um að ræða ákall um varanlegt vopnahlé, heldur til tveggja vikna. 

„En líka mjög mikilvægt, krafa um að mannúðaraðstoð fari inn.“

Ísraelar verði að hlýða

Hvað ef Ísraelar fylgja þessu ekki, hvað gerist þá?

„Það er stórt pólitískt mál ef þeir gera það ekki. Þeir hafa byggt sinn hernað á grundvelli sjálfsvarnar. Nú er Öryggisráðið búið að stíga inn. Annars væru þeir að fara gegn ályktuninni, og þá stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem er þá svolítið nýtt í þessu máli.“

Þórdís segir ekki talað um beitingu vopnavalds gegn Ísrael í ályktuninni.

„Við skulum sjá hvað gerist. Þetta er allt á vogarskálarnar um að fá frið á svæðinu.“

Hún segir ólíklegt að Hamas hlíti þeirri kvöð sem sett er á samtökin í ályktuninni, um að gíslum sem þeir tóku í hryðjuverkaárásunum 7. október verði sleppt.


Tengdar fréttir

Netanjahú í fýlu við Biden

Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, hefur hætt við að senda hóp erindreka til Bandaríkjanna eins og til stóð, eftir að sendiherra Bandaríkjanna sat hjá við atkvæðagreiðslu um ályktun um vopnahlé á Gasaströndinni. Netanjahú segir hjásetuna koma niður á viðleitni Ísraela til að frelsa gísla úr haldi Hamas.

Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt ályktun um tafarlaust vopnahlé á Gasa á meðan Ramadan stendur en það er föstumánuður múslima. Ramadan er hálfnað eins og stendur og lýkur þann 9. apríl næstkomandi. 14 meðlimir ráðsins af 15 samþykktu ályktuna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×