Innlent

Hættu­leg gasmengun kemur í veg fyrir opnun Bláa lónsins

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri hjá Bláa lóninu segist sammála lögreglustjóranum á Suðurnesjum að ekki sé forsvaranlegt að halda úti starfsemi í lóninu að svo stöddu.
Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri hjá Bláa lóninu segist sammála lögreglustjóranum á Suðurnesjum að ekki sé forsvaranlegt að halda úti starfsemi í lóninu að svo stöddu. Vísir/Arnar

Bláa lónið hefur samtals verið lokað í rúmlega áttatíu daga frá því að jarðhræringarnar við Grindavík hófust fyrir fimm mánuðum. Óvíst er hvenær hægt verður að opna á ný vegna hættulegrar gasmengunnar.

Bláa lónið hefur nú verið lokað frá því að það var rýmt þegar eldgos hófst á Reykjanesskaga fyrir ellefu dögum. Há gildi af brennisteinsdíoxíð (S02) hafa mælst á svæðinu í kjölfar gossins. Fyrir viku þurfti starfsmaður Bláa Lónsins að leita sér læknisaðstoðar vegna eitrunareinkenna.

Há gildi af SO2 (brennisteinsdíoxíð) hafa mælst við Bláa lónið undanfarið. Þessi mengun er talin mjög óholl og líklegt að flestir gætu fundið fyrir einkennum í öndunarfærum. Vísir/Vilhelm

Til stóð að Bláa lónið yrði opnað á ný í dag. Seinnipartinn í gær sendi Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, hinsvegar frá sér yfirlýsingu þess efnis að hann teldi óforsvaranlegt að halda úti starfsemi í Bláa Lóninu á meðan eldgos væri enn í gangi.

„Úlfar nefndi sérstaklega að það væri vart forsvaranlegt þegar það væru breytilegar vindar. Þá er staðan þessi og við erum honum hjartanlega sammála,“ segir Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri sölu- markaðs og vöruþróunarsviðs Bláa lónsins.

„Þessvegna erum við að meta stöðuna, læra á þessar áskoranir, vinna áhættumat með verkfræðistofunni Eflu og fjölga mælum. En auðvitað gerum við ekkert nema í nánu samstarfi við yfirvöld og þá sérstaklega lögreglustjórann á Suðurnesjum.“

Gasmengun sé helsta áskorunin sem þau standi frammi fyrir núna.

„Og hún virðist vera ólík þeirri sem við áttum að venjast í fyrri gosum. Þannig við erum auðvitað að læra inn á þessar nýju áskoranir eins og yfirvöld og allir aðrir. Við auðvitað tökum hana mjög alvarlega og munum ekki opna fyrr en okkur líður vel með stöðuna og áhættumat liggur fyrir.“

Páskar háannatími og fjölmargir áttu bókað

Staðan verður endurmetin á mánudag og Helga bindur vonir við að mögulega verði hægt að opna á þriðjudag. Hún segir að í Bláa lóninu, líkt og í ferðaþjónustu í heild séu páskar ákveðin háönn og það hafi verið vel bókað.

„Því miður þurfum við að afbóka þá sem áttu bókað eða voru á leið til okkar, en það er ekki stóra málið. Við erum fyrst og fremst á þessum tímapunkti að ná utan um stöðuna.“

Þetta er auðvitað búið að vera krefjandi en svona er þetta bara og við höldum áfram.

Bláa lónið hefur samtals verið lokað í rúmlega áttatíu daga frá 10. nóvember.

„Við höfum verið svo lánsöm að þegar við höfum opnað aftur hafa gestir verið duglegir að koma til okkar og tekið því mjög fagnandi. Það er auðvitað það sem skiptir mestu máli,“ segir Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri sölu- markaðs og vöruþróunarsviðs Bláa lónsins


Tengdar fréttir

Starfsmaður Bláa lónsins á sjúkrahús vegna gaseitrunar

Starfsmaður Bláa lónsins leitaði á sjúkrahúsí gær í kjölfar eitrunareinkenna vegna gasmengunnar. Alvarleiki veikindanna liggur ekki fyrir en öryggisstjóri aðgerða í Grindavík fundar með forsvarsmönnum Bláa lónsins.

Aukin hætta vegna gasmengunar

Aukin hætta er vegna gasmengunar á öllum svæðum við eldstöðvarnar við Sundhnúk. Hætt er við því að gasmengun muni berast yfir Grindavík og önnur nærliggjandi svæði um helgina.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×