Innlent

Steinunn Ó­lína hálfu skrefi frá því að bjóða sig fram

Jakob Bjarnar skrifar
Steinunn Ólína ritar grein sem ekki er hægt að skilja á annan veg en svo að hún sé hársbreidd frá því að gefa kost á sér sem forseti Íslands.
Steinunn Ólína ritar grein sem ekki er hægt að skilja á annan veg en svo að hún sé hársbreidd frá því að gefa kost á sér sem forseti Íslands. Kári Sverrisson

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir hefur birt grein sem ekki er hægt að skilja öðru vísi en svo að ekki þurfi mikið til að koma svo hún stigi fram og gefi kost á sér í framboði til forseta lýðveldisins.

,Ég held ekki þrátt fyrir hvatningu margra að ég eigi skilyrðislaust að fara í framboð en ég vil að fólk viti að ég er að hugleiða það af alvöru,“ segir Steinunn Ólína leikkona í samtali við Vísi.

Steinunn hefur ritað viðhorfsgrein sem hún birti í Vísi nú rétt í þessu þar sem hún gefur því rösklega undir fótinn að hún sé að íhuga forsetaframboð. Greinin er undir yfirskriftinni „Bréf til þjóðarinnar“ og þar segir hún meðal annars:

„Ég er alvarlega að hugleiða að gefa kost á mér til embættis forseta Íslands af fullum heilindum, nú eldri og lífsreyndari. Þar vegur þyngst hvatning bláókunnugs fólks úr röðum almennings frá áramótum. Hvatning frá fólki sem finnst það þekkja mig, þykist vita hvar það hefur mig, hefur lesið það sem ég hef skrifað um samfélagsmál, og sem veit að ég hef persónulega staðist erfiðar áskoranir í lífinu og hræðist ekki mótlæti.“

Áður hafði Steinunn rakið ítarlega hvers má vænta af forseta landsins og hvað má prýða einn slíkan. Hún segir að það hafi aldrei þvælst fyrir sér að vera þjóðþekkt persóna.

„Mér þykir ævinlega vænt um það þegar fólk gefur sig á tal við mig. Við erum lítið samfélag þar sem allir þekkja alla og það er notalegt. Fólk segir mér líka óspart til syndanna ef því er að skipta og það er bara gott á mig. Það hefur orðið mér hvatning til að líta í eigin barm og freista þess að skilja aðra fremur en afskrifa, sem er flóttaleið sem útheimtir enga sjálfsskoðun. Ég trúi að þátttaka í mótun samfélags sé skylda hverrar manneskju sem trúir á og vill verja lýðræðið.“

Steinunn segist hafa tjáð sig talsvert um samfélagsmál og þá ávallt talað út frá eigin brjósti, aldrei til að þóknast kröfum annarra. „Ég kann að meta hreinskiptin samskipti og vil að í lýðræðissamfélagi geti fólk tjáð sig óhikað án þess að eiga á hættu útskúfun og útilokun.“

Þá nefnir Steinunn Ólína að hún hafi aldrei haft klappstýrur og jáfólk í kringum sig. Hún segir jafnframt að ef hún gefi kost á sér í komandi forsetakosningum muni hún gera það af heilum hug. „Af djúpu þakklæti fyrir að fæðast í þessu fallega og örugga landi og hafa notið þess atlætis sem raun ber vitni.“


Tengdar fréttir

Baldur mælist með langmest fylgi

Baldur Þórhallsson mælist með 37 prósent fylgi í könnun Prósents um hvern frambjóðanda fólk vilji að verði næsti forseti Íslands. Næsti frambjóðandi, Halla Tómasdóttir, mælist með 15 prósent fylgi en 34 prósent svarenda segjast ekki vita hvern þeir vilja í embætti forseta.

Helga hellir sér í forsetaslaginn

Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar ætlar að gefa kost á sér til embættis forseta Íslands. Helga upplýsti um þetta á blaðamannafundi á heimili sínu í Fossvoginum í hádeginu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×