Innlent

Lækna­fé­lagið mótfallið lög­leiðingu dánaraðstoðar

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélagsins, segir að til standi að ræða málið innan félagsins og kanna hug félagsmanna.
Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélagsins, segir að til standi að ræða málið innan félagsins og kanna hug félagsmanna. Vísir/Arnar

Læknafélag Íslands er mótfallið frumvarpi um dánaraðstoð sem nú liggur fyrir Alþingi. Þetta sagði Steinunn Þórðardóttir, formaður félagsins, í Pallborðinu á Vísi fyrr í dag.

Félagið hefur ekki skilað inn umsögn um frumvarpið né heldur Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga. Sjúkraliðafélagið hefur hins vegar sent inn umsögn og segist styðja frumvarpið.

Steinunn gagnrýndi samráðsleysi við samningu og framlagningu frumvarpsins, ekki síst þar sem þar væri kveðið á um aðkomu lækna að því að aðstoða fólk við að deyja.

„Þarna er bara nákvæm verklýsing á því að aðstoða einstakling eða jafnvel deyða einstakling og það hefur ekkert verið talað við okkur í aðdraganda þess að þetta er lagt fram, sem mér finnst áhugavert. Vegna þess að þessu er beint sérstaklega að okkar stétt, “ sagði Steinunn.

Skoðanakannanir sýna að stuðningur meðal lækna hefur aukist en Steinunn bendir á að þátttaka í könnunum hafi verið lítil og segir að mögulega séu þeir að svara sem hafa hugsað málið og tekið afstöðu með dánaraðstoð.

Hún segir skýran mun á líknandi- og lífslokameðferð og dánaraðstoð og að með því að skikka lækna til að sinna síðarnefnda sé verið að fara yfir ákveðið strik.

„Okkar hlutverk er að bera virðingu fyrir lífi,“ segir hún. „Það er ein af okkar grunn siðareglum; að virða líf. 

Við þurfum ekki að lengja líf sama hvað það kostar, við auðvitað virðum sjálfsákvörðunarrétt fólks sem er á lokametrum lífsins; er með ólæknandi sjúkdóm og vill ekki alla meðferð. Og það er náttúrlega eitthvað sem við förum yfir með fólki; viltu gjörgæslumeðferð, öndunarvél, viltu vökva, sýklalyf? Það er hægt að halda að sér höndum auðvitað ef fólk vill ekki lengja lífið. En við styttum ekki líf, það er ekki eitt af okkar markmiðum.“

Ingrid Kuhlman, formaður Lífsvirðingar, sagðist fagna því að frumvarpið hefði verið lagt fram en félagið gerir ýmsar athugasemdir við það í umsögn sinni. Henry Alexander Henrysson siðfræðingur sagði það opna spurningu hvort fólk ætti rétt á að ákveða að deyja en að réttindum fylgdu skyldur og því væri ósvarað hvort það væri forsvaranlegt að leggja umrædda skyldu á lækna.

Öll voru sammála um að frekari umræðu um dánaraðstoð væri þörf.


Tengdar fréttir

Pallborðið: Eiga læknar að aðstoða fólk við að deyja?

Umsögnum um nýtt frumvarp um dánaraðstoð fjölgar nú dag frá degi en það miðar að því að tryggja einstaklingum réttinn til að velja að deyja með aðstoð lækna. Dánaraðstoð verður til umræðu í Pallborðinu klukkan 14 í dag, í beinni útsendingu á Vísi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×