Erlent

Raf­­­mynta­­kóngurinn í 25 ára fangelsi

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Sam Bankman-Fried er að fara í fangelsi.
Sam Bankman-Fried er að fara í fangelsi. AP/Mary Altaffer

Sam Bankman-Fried, oft þekktur sem „rafmyntakóngurinn“, hefur verið dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir að hafa af viðskiptavinum sínum milljónir dala.

Bankman-Fried er stofnandi fallna rafmyntafyrirtækisins FTX, en hann var ákærður fyrir stórfelld fjársvik í tengslum við FTX, sem var um tíma þriðja stærsta rafmyntakauphöll heims. FTX fór á hausinn 2022. Bankman- Fried var meðal annars gefið að sök að hafa veitt milljörðum dollara af fjármunum viðskiptavina til annars fyrirtækis í hans eigu sem stóð í áhættufjárfestingum.

Hinn 32 ára Bankman-Fried var fundinn sekur um fjársvik og peningaþvætti í nóvember á síðasta ári, en í dag varð ljóst að hann myndi verja næstu 25 árum bak við lás og slá. Verjendur hans höfðu lagt til fimm til sex og hálfs árs fangelsi, á meðan saksóknarar í málinu fóru fram á 50 ára fangelsisdóm.

Fyrir dómi í dag viðurkenndi Bankman-Fried að hafa tekið „röð slæmra ákvarðana“ sem ásæki hann á hverjum degi. Hann baðst þó ekki beinnar afsökunar á brotum sínum. Þá höfðu verjendur hans haldið því fram að varna hefði mátt falli FTX ef meiri tími hefði verið til stefnu.

Þessu hafnaði dómarinn í málinu og sagði Bankman-Fried ekki hafa sagt eitt iðrunarorð um glæpi sína. 


Tengdar fréttir

Segja Bank­man-Fri­ed lifa á vatni og brauði í tugt­húsinu

Verjandi Sam Bankman-Fried, stofnanda fallna rafmyntafyrirtækisins FTX, sagði að hann lifði aðeins á vatni og brauði í fangelsi vegna þess að honum væri ekki boðið upp á veganfæði þar. Bankman-Fried neitaði sök þegar saksóknarar lögðu fram uppfærða ákæru á hendur honum í dag.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×