Erlent

Um­fangs­mikið verk­efni að hreinsa til eftir slysið

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Vöruflutningaskipinu The Dali var siglt á brúna Scott Key Bridge í borginni Baltimore í Maryland aðfaranótt þriðjudags. 
Vöruflutningaskipinu The Dali var siglt á brúna Scott Key Bridge í borginni Baltimore í Maryland aðfaranótt þriðjudags.  AP

Ríkisstjórn Joe Biden í Bandaríkjunum hefur samþykkt fjárframlög upp á sextíu milljónir Bandaríkjadala til Maryland-ríkis svo hægt verði að hreinsa upp brakið sem varð til þegar brú hrundi í borginni Baltimore fyrr í vikunni. 

Minnst sex létust þegar fraktskipi var siglt á brúna með þeim afleiðingum að hún hrundi aðfaranótt þriðjudags. Skipið varð vélarvana stuttu áður en það hafnaði á einum brúarstólpanna, en samkvæmt nýju mati var brúin, sem reist var árið 1976, ekki byggð með nútíma öryggisstaðla í huga.

Wes Moore ríkisstjóri Maryland lagði fram áætlun um hvernig farið yrði að því að fjarlægja skipið og brak af svæðinu og að reisa brúna upp á nýtt á blaðamannafundi í gær. 

„Við eigum langt í land, “ sagði hann á fundinum og að fram undan væru margar áskoranir hvað aðgerðina varðar. Ein þeirra væri lengd flutningaskipsins, sem er nærri jafn langt og Eiffelturninn. 

Stærsti krani Bandaríkjanna notaður

Moore líkti ástandinu við atvikið þegar flutningaskipið Evergreen festist í Súesskurðinum í Egyptalandi árið 2021. Munurinn sé þó sá að brúin liggi ofan á skipinu í þetta skipti, en hann áætlar að þrjú til fjögur þúsund tonn af stáli liggi á því. 

Hann sagði vatnið í ánni svo dökkt og brakið svo þykkt að kafarar sæju ekki lengra en um hálfan metra fram fyrir sig. 

Þá sagðist hann eiga von á að 907 tonna krani, sem er sá stærsti í Bandaríkjunum, komi til Baltimore í dag. Kraninn komi til með að færa brak úr ánni. Annar fjögur hundruð tonna krani komi á morgun í sama tilgangi. Moore sagði að nú þyrfti að finna leið til þess að búta niður þann hluta brúarinnar sem liggi á skipinu til þess að hægt yrði að fjarlægja hana af skipinu með krananum. 

Mikið magn eldfimra efna er að finna í gámum flutningaskipsins, þar með talið litíumrafhlöður og ilmvötn. Talsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna áætlaði að 764 tonn af ætandi eða eldfimum efnum væru um borð á skipinu. 

Moore sagði að nú lægi mest á að opna siglingaleiðina á ný. Sérfræðingar hafa sagt að lokun brúarinnar til lengri tíma gæti ógnað vöruflutningum á heimsvísu. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×