Fótbolti

Tólf á­horf­endur dæmdir í fangelsi fyrir að syngja í Sádí Arabíu

Siggeir Ævarsson skrifar
Það er ekki alltaf góð stemming á völlunum í Sádí Arabíu
Það er ekki alltaf góð stemming á völlunum í Sádí Arabíu vísir/Getty

Mannréttindasamtök víða um heim hafa fordæmt yfirvöld í Sádí Arabíu eftir að tólf áhorfendur á leik Al Safa og Al Bukiryah í janúar voru dæmdir til fangelsisvistar fyrir þær sakir að syngja söngva með trúarlegri tilvísun.

Leikurinn fór fram í austurhluta Sádí Arabíu en Shía múslimar, sem eru í minnihluta í landinu, búa flestir á því svæði. Söngurinn var tekinn upp og dreift á samfélagsmiðlum en blaðamanni tókst þó ekki að hafa uppi á upptökunni.

Tveir einstaklingar úr hópnum voru dæmdir í árs fangelsi og hinir tíu til sex mánaða fangelsisvistar og þá þurfa allir að greiða sektir en þær hæstu nema um 370 þúsund í íslenskum krónum talið. Alls voru 150 einstaklingar yfirheyrðir af lögreglu í tengslum við málið.

Áður en dómurinn var kveðinn upp kallaði Amnesty International eftir því að fólkinu yrði tafarlaust sleppt úr haldi og málið látið niður falla. Mannréttindavaktin (e. Human Rights Watch) vakti athygli á dómnum á fimmtudag og þeirri staðreynd að Sádí Arabía er eina landið sem sækist nú eftir því að halda heimsmeistaramótið í knattspyrnu árið 2034.

Að sögn Mannréttindavaktarinnar hafa stjórnvöld í Sádí Arabíu varið milljörðum í að hvítþvo ímynd sína í gegnum íþróttir til að leiða athygli heimsins frá ítrekuðum mannréttindabrotum í landinu.

„Sú staðreynd að áhorfendur á fótboltaleikjum séu fangelsaðir fyrir það eitt að syngja söngva er enn ein ástæða þess að sýndarferli FIFA við val á leikstað fyrir heimsmeistaramótið 2034 sem gerði það að verkum að Sádí Arabía er ein um hituna er ekki bara vandræðalegt heldur líka hættulegt“ - segir Joey Shea, sérfræðingur í málefnum Sádí Arabíu hjá Mannréttindavaktinni og bætir við:

„Hvernig geta aðdáendur knattspyrnu upplifað öryggi í Sádí Arabíu ef það er hægt að dæma þá til fangelsisvistar fyrir ekkert annað en að syngja söngva sem eru stjórnvöldum á móti skapi?“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×