Erlent

Maðurinn sem hljóp þvert yfir alla Afríku

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Þegar kappinn Russ Cook komst lokst í mark, á nyrsta odda Afríku, í Túnis.
Þegar kappinn Russ Cook komst lokst í mark, á nyrsta odda Afríku, í Túnis. X

Bretinn Russ Cook lauk því ótrúlega afreki í dag að hlaupa þvert yfir alla Afríku. Það gerði hann á 352 dögum í þágu góðgerðarstarfs.

Russ Cook, sem kallar sig „Hardest geezer“ á samfélagsmiðlum hóf hlaup sitt í Suður Afríku, á syðsta punkti Afríkuálfu og lauk því á þeim nyrsta í Túnis í dag. Á meðan þrekrauninni stóð var Russ duglegur við að sýna fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum frá því hver staðan á hlaupinu væri, en ekki síður staðan á honum sjálfum. Á leiðinni varð Russ fyrir alls kyns hrakföllum, eins og við mátti búast, svo sem veikindum, meiðslum og ráni. 

Hér að neðan má sjá skrautlega útsendingu Sky News frá því þegar Russ Cook kom í mark við strendur Túnis. Fjölmargir höfðu safnast saman til að taka á móti kappanum.

Dæmi um myndband þar sem Russ Cook gefur fylgjendum sínum stöðuuppfærlsu á samfélagsmiðlum má sjá hér að neðan.

Russ Cook segir að með hlaupinu hafi ætlunin verið að geta horft til baka á ævina án eftirsjár. Árin fyrir hlaup glímdi Russ við andleg veikindi, spilafíkn og óreglu. Tími var kominn til að snúa blaðinu við. 

Eins og áður segir hljóp Russ frá Suður-Afríku alla leið til Túnis, og fór í gegnum sextán lönd á leiðinni. Upprunalega planið var að hlaupa suður frá Túnis, en þau plön fóru í súginn vegna vegabréfavesens í Alsír. Til stóð að hlaupa 360 maraþon á 240 dögum. Á síðustu stundu breyttust plönin: hann skyldi hlaupa frá syðsta enda Suður-Afríku og þaðan í gegnum Afríkulöndin í vesturhluta álfunnar. Að endingu lauk hann maraþonunum 360 á 352 dögum.

Hvorki meira né minna en nítján milljónir skrefa þarf til þess að skrefa alla Afríku.

Ýmislegt varð á vegi jaxlsins, þar á meðal vopnað rán í Namibíu. Vegabréfi, myndavélum, símum, pening og visa-áritunum var stolið þann 24. júní á síðasta ári.

Heilsan var ekki alltaf upp á sitt besta; þrálátur bakverkur gerði snemma vart við sig, auk magapesta sem gerði það að verkum að Russ þurfti að minnka hraðann á hlaupinu. 

Hann gafst þó aldrei upp og í dag lauk þessu þrekvirki á nyrsta odda Afríku. Fjöldinn allur af hlaupurum hlupu síðasta spölinn með Russ og breska pönkhljómsveitin Soft Play, áður Slaves, er mætt til að halda fjörinu uppi í kvöld. 

Óhætt er að mæla með X aðgangi Russ Cook þar sem hann hefur deilt efni frá hlaupinu mikla. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×