Erlent

Að­gerða­leysi í loftslagsmálum talið mann­réttinda­brot

Kjartan Kjartansson skrifar
Svissneskir og portúgalskir stefnendur í sal Mannréttindadómstóls Evrópu í Strasbourg í morgun.
Svissneskir og portúgalskir stefnendur í sal Mannréttindadómstóls Evrópu í Strasbourg í morgun. AP/Jean-Francois Badias

Mannréttindadómstóll Evrópu telur að svissnesk stjórnvöld hafi brotið mannréttindi eldri kvenna með aðgerðaleysi sínu í loftslagsmálum. Tveimur öðrum áþekkum málum var aftur á móti vísað frá dómi.

Dómurinn í máli um tvö þúsund svissneskra kvenna á áttræðisaldri gegn ríkisstjórn þeirra markar tímamót því þetta er í fyrsta skipti sem alþjóðadómstóll dæmir í máli sem tengist hnattrænni hlýnun. 

Á sama tíma vísaði dómstóllinn frá máli fransks bæjarstjóra strandbæjar og hóps portúgalskra ungmenna sem kröfðu stjórnvöld í Frakklandi annars vegar og 32 Evrópuríki hins vegar um harðari loftslagsaðgerðir. Þau vonuðust til þess að Mannréttindadómstóllinn kæmist að þeirri niðurstöðu að landsstjórnir hefðu lagalega skyldu til þess að halda hlýnun innan marka Parísarsamkomulagsins.

Konurnar sem unnu sitt mál sökuðu svissnesk stjórnvöld um að brjóta á mannréttindum sínum með því að grípa ekki til róttækra aðgerða gegn loftslagsbreytingum. Rök þeirra voru meðal annars þau að þær væru í aukinni hættu á að láta lífið í hitabylgjum vegna aldurs síns og kyns. Þær gætu ekki farið út úr húsi þegar slíkar hitabylgjur geisa. Lögmenn svissneskra stjórnvalda báru fyrir sig að Sviss gæti ekki leyst loftlagsvandann upp á eigin spýtur.

„Sumar okkar eru bara þannig gerðar. Við erum ekki gerðar til þess að sitja í ruggustól að prjóna,“ sagði Elisabeth Smart, ein svissnesku kvennanna sem höfðuðu málið, um hvernig þær héldu málarekstrinum gangandi í níu ár við breska ríkisútvarpið BBC.

Sænski loftslagsaðgerðasinninn Greta Thunberg var á meðal þeirra sem söfnuðust saman við dómshúsið í Strasbourg áður en dómurinn var kveðinn upp.AP/Jean-Francois Badias

Réttur á vernd gegn áhrifum loftslagsbreytinga

Siofra O'Leary, forseti Mannréttindadómstólsins, féllst á að svissnesk stjórnvöld hefðu brotið á konunum með því að setja sér ekki nægilega kröftuga stefnu í loftslagsmálum. Þá hefðu þau ekki náð eigin markmiðum um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda.

Töldu dómararnir sautján að áttunda grein Mannréttindasáttmála Evrópu fæli í sér rétt til þess að fólk njóti verndar stjórnvalda gegn skaðlegum áhrifum loftslagsbreytinga á líf þess, velferð og lífsgæði.

Ekki er hægt að áfrýja niðurstöðunni og hún gæti þvingað ríkisstjórnir til þess að draga meira úr losun gróðurhúsalofttegunda, að sögn Reuters-fréttastofunnar.

„Ég vonaði virkilega að við ynnum gegn öllum löndunum þannig að ég er augljóslega vonsvikin að það gerðist ekki. En það mikilvægasta er að dómstóllinn segir í máli svissnesku kvennanna að ríkisstjórnir verði að draga frekar úr losun til að vernda mannréttindi. Þeirra sigur er því sigur fyrir okkur líka og sigur fyrir alla!“ sagði Sofia Oliveira, ein portúgölsku stefnendanna sex.

Niðurstaðan er sögð geta haft áhrif á hvernig dómstólar taka afstöðu til sambærilegra mála í 46 ríkjum sem eiga aðild að Evrópuráðinu.

„Þetta er vendipunktur,“ segir Corina Heri, sérfræðingur í loftslagsmálaferlum við Háskólann í Zurich, við AP-fréttastofuna. Niðurstaðan staðfesti í fyrsta skipti að ríki hafi skyldu til að vernda fólk fyrir loftslagsbreytingum. Líklegt sé að fleiri mál fylgi í kjölfarið.

Fréttin verður uppfærð.

 


Tengdar fréttir

Verndar mann­réttinda­sátt­máli Evrópu um­hverfið?

Í dag verða kveðnir upp dómar í þremur málum hjá mannréttindadómstóli Evrópu, sem allir fjalla um það hvort evrópskar ríkisstjórnir hafi gerst sekar um aðgerðarleysi í loftslagsmálum. Greinarkorn þetta er skrifað áður en dómarnir eru birtir.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×