Erlent

Uppljóstrar um hálfrar aldar gamalt fram­hjá­hald fyrrum for­sætis­ráð­herra

Jón Þór Stefánsson skrifar
Harold Wilson var forsætisráðherra í tvígang. 1964 til 1970 og aftur frá 1974 til 1976.
Harold Wilson var forsætisráðherra í tvígang. 1964 til 1970 og aftur frá 1974 til 1976. Getty

96 ára gamall maður að nafni Joe Haines, sem starfaði um árabil sem fjölmiðlafulltrúi forsætisráðuneytis Bretlands, hefur nú opinberað framhjáhald Harolds Wilson fyrrum forsætisráðherra Breta. Að sögn Haines hélt ráðherrann við Janet Hewlett-Davies, sem var aðstoðarfjölmiðlafulltrúi í Downingstræti 10, og var 22 árum yngri en Wilson. Þau voru bæði gift.

Haines segist nú uppljóstra um framhjáhaldið til að tryggja sögulegar heimildir um stjórnartíð Wilsons, sem var forsætisráðherra í tvígang, frá 1964 til 1970 og aftur frá 1974 til 1976. Framhjáhaldið átti sér stað á seinna kjörtímabili hans, áður en hann sagði af sér sextugur að aldri.

Wilson lést árið 1995, 79 ára að aldri, en Hewlett-Davies lést í fyrra 85 ára gömul.

The Times greindi frá afhjúpuninni í vikunni, en samkvæmt miðlinum hafa lengi verið orðrómur um meint framhjáhald ráðherrans.

Hjónin Harold og Mary Wilson árið 1970. Hann lést árið 1995, 79 ára að aldri, en hún 2018, þá 102 ára.Getty

Í umfjöllun The Times að Haines sé nánasti eftirlifandi aðstoðarmaður Wilsons, sem segir að bæði Wilson og Hewlett-Davies hafi sagt sér frá ástarævintýri þeirra. Hann einu sinni hafa séð Davies léðast úr herbergi forsætisráðherrans seint um kvöld. Morguninn eftir hafi hann spurt hana hvað hafi átt sér stað, og hún greint honum frá sambandinu.

Síðan hafi þau bæði þagað um framhjáhaldið í fjöldamörg ár, um leyndarmálið sem „lak ekki úr Downingstræti, húsinu sem er frægt fyrir að leka meira en öll önnur hús í Bretlandi.“

Haines segir framhjáhaldið hafa létt lund forsætisráðherrans á síðustu tveimur árum hans í embætti.

„Það ótrúlega er að enginn nema ég vissi af sambandi Janets og Wilsons, en hún reyndi aldrei að hagnast á því á nokkurn veg. Þetta var bersýnilega ást af hennar hálfu, og ánægja hans fékk mig til að gruna að það ætti líka við um hann,“ segir Haines.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×