Íslenski boltinn

„Ívar hafði ekki kjarkinn í að gefa Heimi rautt spjald“

Íþróttadeild Vísis skrifar
Ívar Orri stóð í ströngu í leik Blika og FH og var ófeiminn við að veifa spjöldunum. Nema þegar kom að þjálfara FH. Þá lét hann eitt spjald duga.
Ívar Orri stóð í ströngu í leik Blika og FH og var ófeiminn við að veifa spjöldunum. Nema þegar kom að þjálfara FH. Þá lét hann eitt spjald duga. vísir/anton

Dómgæslan var á allra vörum eftir 1. umferð Bestu deildar karla og fannst flestum of langt vera gengið í að spjalda leikmenn. Yfir 50 spjöld fóru á loft.

„Þetta er allt of mikið af því góða. Ég skil vel að menn vilji ná tökum á hörku og orðræðu en þetta er allt of mikið. Það enda bara allir í banni,“ segir Aron Guðmundsson íþróttafréttamaður í Besta sætinu, hlaðvarpi íþróttadeildar.

„Ég er fylgjandi því að menn fái gult fyrir að sparka boltanum í burtu og taka hann upp. Það er ekkert meira pirrandi,“ bætti Valur Páll Eiríksson við.

Margir hafa gagnrýnt að það sé sérstaklega vont að spjalda menn fyrir að sýna tilfinningar og einhverjir óttast að það muni drepa leikinn.

„Hvar liggja mörkin þar? Hvað má mikið og hvað er of langt gengið? Þetta er grá lína. Línan var ekkert endilega sú sama hjá öllum dómurunum og þeir verða að stilla strengina betur,“ segir Valur Páll.

„Leikur án tilfinninga er svo leiðinlegur leikur,“ bætir Aron við.

Henry Birgir Gunnarsson benti svo á að Ívar Orri Kristjánsson, dómari leiks Breiðabliks og FH, hefði ekki þorað að fylgja línunni og gefa þjálfara FH, Heimi Guðjónssyni, rautt.

„Hann gaf gult á bekkinn og Heimir hneigir sig fyrir honum í einhverri fyrirlitningu. Það er gulasta spjald umferðarinnar og Ívar hafði ekki kjarkinn til að henda honum af velli,“ sagði Henry.

Besta sætið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum sem og á Vísi.

Klippa: Fréttir vikunnar 12. apríl



Fleiri fréttir

Sjá meira


×