Erlent

Íranir gera um­fangs­mikla á­rás á Ísrael

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Ali Khamenei, æðsti klerkur og leiðtogi Írans, hefur heitið hefndum frá upphafi mánaðar vegna loftárásar sem felldi sjö íranska hermenn á ræðisskrifstofu Írans í Sýrlandi.
Ali Khamenei, æðsti klerkur og leiðtogi Írans, hefur heitið hefndum frá upphafi mánaðar vegna loftárásar sem felldi sjö íranska hermenn á ræðisskrifstofu Írans í Sýrlandi. ap

Íranir hafa hafið drónaárásir sem beinast gegn Ísrael. Þetta er haft eftir upplýsingafulltrúa ísraelska hersins.

Íranir hafa hótað hefndum fyrir loftárás, sem Ísraelar voru bendlaðir við, á ræðismannsskrifstofu Íran í Damaskus í Sýrlandi. Sú árás átti sér stað í upphafi mánaðar. 

Íranar hóta hefndum gegn Ísrael

Nú virðast Íranir hafa látið til skarar skríða. Ísraelski herinn hefur gefið út yfirlýsingu þar sem fram kemur að herinn búi sig undir fyrrgreindar árásir, sem bæði séu framkvæmdar með drónum og eldflaugum. Búist er við því að drónarnir nái ísraelskri lofthelgi innan nokkurra klukkustunda. 

Á samfélagsmiðlum eru myndbönd í dreifingu sem sýna það sem gætu verið íranskir drónar á leið vestur. 

Fylgst er með gangi mála í vaktinni hér að neðan. Ef hún birtist ekki er ráð að endurhlaða síðunni. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira
×