Erlent

Hættu við eftir sím­tal frá Biden

Samúel Karl Ólason skrifar
Joe Biden og Benjamín Netanjahú.
Joe Biden og Benjamín Netanjahú. AP

Stríðsráð Ísrael mun koma saman seinna í dag til að ræða möguleg viðbrögð við umfangsmikilli árás Írana á landið í gærkvöldi og í nótt. Ísraelar ætluðu sér að bregðast við árásinni í gærkvöldi en eru sagðir hafa hætt við.

Í frétt New York Times er haft eftir tveimur ónafngreindum ísraelskum embættismönnum að meðlimir stríðsráðsins, sem myndað var eftir árásina á Ísrael þann 7. október, hafi lagt til viðbrögð við árás Írana í gærkvöldi. Hætt hafi verið við þau viðbrögð eftir að Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, ræddi við Joe Biden, forseta Bandaríkjanna.

Heimildarmenn NYT vildu ekki segja nánar frá því hvað Netanjahú og Biden töluðu um.

Biden hefur kallað eftir því að Ísraelar forðist frekari stigmögnun og hefur hann boðað leiðtoga G-7 ríkjanna á fund til að finna annarskonar leiðir til að bregðast við árás Írana.

Einnig segja embættismennirnir að það hafi spilað inn í að nánast allir drónarnir og eldflaugarnar sem Íranar skutu að Ísrael hafi verið skotnar niður.

Árás Írana hefur verið fordæmd víða á Vesturlöndum.

Utanríkisráðherra Írans hefur kallað sendiherra Bretlands, Þýskalands og Frakklands, á teppið í Teheran í dag. Í yfirlýsingu frá ráðuneytinu segir að sendiherrarnir hafi verið boðaðir á fund vegna „óábyrgrar afstöðu“ ríkjanna til árásar Írana.

Eins of fram hefur komið skutu Íranar um þrjú hundruð sjálfsprengidrónum, stýriflaugum og skotflaugum að Ísrael í gærkvöldi. Það segjast ráðamenn í Íran hafa gert vegna loftárásar á ræðismannsskrifstofu Íran í Damaskus í Sýrlandi í síðasta mánuði, sem Ísraelar hafa verið sakaðir um að gera.

Tveir herforingjar úr íranska byltingarverðinum féllu í árásinni.

Forsvarsmenn herafla Íran hafa lýst því yfir í morgun að málinu sé lokið af þeirra hálfu en segja að Íranar muni gera enn stærri árás á Ísrael, svari Ísraelar árásinni í gærkvöldi.

Íranar hafa einnig varað Bandaríkjamenn við því að koma Ísraelum til aðstoðar. Geri þeir það verði árásir gerðar á bandarískar herstöðvar í Mið-Austurlöndum.

Slíkar árásir frá vígahópum sem Íranar standa við bakið á hafa verið tíðar á undanförnum mánuðum. Bandarískur hermaður féll í þessum árásum í fyrra, sem leiddi til árása Bandaríkjamanna á hermenn byltingarvarðarins í Sýrlandi. Þá hafa hóparnir einnig skotið eldflaugum að sendiráði Bandaríkjanna í Baghdad í Írak.


Tengdar fréttir

Ísland fordæmir árásina

Ísland fordæmir árás Írana á Ísrael. Þetta kemur fram í færslu Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra í færslu á samfélagsmiðlinum X. Utanríkisráðuneytið hefur beðið Íslendinga í Ísrael að láta vita af sér. 

Neyðarfundur hjá öryggisráði Sameinuðu þjóðanna

Boðað hefur verið til neyðarfundar hjá öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í dag vegna árásar Íran á Ísrael. Fundurinn fer fram síðdegis. Þá mun þjóðstjórn í ríkisstjórn Netanjahús funda með morgninum. 

Útkoman sem allir óttuðust

Beint stríð milli Írans og Ísraels er niðurstaða langdreginna átaka, sem óttast var mest. Íranir hafa undirbúið hefndaraðgerðir frá því að loftárás, sem Ísraelar voru bendlaðir við, var gerð á ræðismannsskrifstofu Íran í Damaskus í Sýrlandi. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×