Íslenski boltinn

KR-ingar meira en tíu klukku­tímum fljótari í sjö mörkin í ár

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
KR-ingar fagna einu af sjö mörkum sínum í Bestu deild karla í fótbolta í sumar.
KR-ingar fagna einu af sjö mörkum sínum í Bestu deild karla í fótbolta í sumar. Vísir/Anton Brink

Benoný Breki Andrésson innsiglaði sigur KR í Garðabænum í Bestu deild karla í fótbolta á föstudagskvöldið en Vesturbæjarliðið er með fullt hús og sjö mörk eftir fyrstu tvær umferðirnar.

Þetta er í fyrsta sinn í ellefu ár sem KR vinnur tvo fyrstu leiki sína en það er líka athyglisvert að bera þessa byrjun saman við byrjun liðsins í fyrra.

Annar sigur KR í Bestu deildinni í fyrra kom nefnilega ekki fyrr en í áttunda deildarleik liðsins.

Það er líka fróðlegt að skoða það hvenær sjöunda deildarmark liðsins leit dagsins ljós sumarið 2023.

Jú það kom ekki fyrr en í tíunda leik liðsins sem var á móti Fylki í Árbænum 1. júní 2023. Sjöunda markið skoraði Jóhannes Kristinn Bjarnason í 3-3 jafntefli á móti Fylkismönnum.

Þá voru liðnar 822 mínútur af tímabili KR-inga. Þegar Benoný Breki skoraði í uppbótatíma í Garðabænum voru aftur á móti liðnar aðeins 180 mínútur af tímabili Vesturbæinga.

Það þýðir að KR-ingar voru 642 mínútum fljótari að skora sitt sjöunda mark í ár en í fyrra. Það gerir nákvæmlega tíu klukkutímum og 42 mínútum á undan KR-liðinu í mark númer sjö miðað við fyrrasumar.

Gregg Oliver Ryder hefur heldur betur tekist vel að setja saman öflugt KR-lið og undirbúa það vel fyrir baráttuna í Bestu deildinni. Þeir ná ekki aðeins í stigin heldur skemmta stuðningsmönnum sínum með fullt af mörkum líka.

  • Mínútur hjá KR til að skora mark númer sjö
  • 2024: 180 mínútur
  • 2023: 822 mínútur
  • 2022: 402 mínútur
  • 2021: 368 mínútur
  • 2020: 369 mínútur
  • -
  • Leikir hjá KR til að vinna annan siguruinn
  • 2024: 2 leikir
  • 2023: 8 leikir
  • 2022: 5 leikir
  • 2021: 5 leikir
  • 2020: 3 leikir



Fleiri fréttir

Sjá meira


×