Lífið

Sofia Vergara með fjallmyndarlegum lækni

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Sofia Vergara hefur undanfarið verið dómari í raunveruleikaþáttunum America's Got Talent.
Sofia Vergara hefur undanfarið verið dómari í raunveruleikaþáttunum America's Got Talent. Victoria Sirakova/Getty

Hollywood stjarnan Sofia Vergara hefur opinberað samband sitt á samfélagsmiðlinum Instagram. Þar birtir hún mynd í fyrsta sinn af kærastanum sínum, lækninum Justin Salman en orðrómur hefur verið uppi um samband þeirra í á annað ár.

Leikkonan var í aðgerð á hnéi nýlega og birti mynd af hinum fjallmyndarlega lækni sér við hlið. Þá bætir hún um betur á myndinni og segist elska kappann. Myndina má sjá neðst í fréttinni.

Justin þessi er bæklunarskurðlæknir og ljóst að það hefur komið sér ansi vel fyrir leikkonuna að hafa hann sér við hlið. Þau hafa reglulega sést saman síðasta árið að því er fram kemur á vef slúðurmiðilsins toofab.

Það hefur hinsvegar aldrei fengist staðfest að þau væru saman fyrr en nú. Sofia var síðast með Joe Manganiello en þau skildu að borði og sæng í fyrra. Ástæðan var sú að sögn Sofiu að hann langaði í börn en hana ekki. Hún taldi sig vera orðna of gamla.

Instagram





Fleiri fréttir

Sjá meira


×