Sport

Hefur æft eins og skepna og hlakkar til að keppa: „Þetta er það sem við lifum fyrir“

Sindri Sverrisson skrifar
Anton Sveinn McKee keppir í Laugardalnum um helgina.
Anton Sveinn McKee keppir í Laugardalnum um helgina. mynd/stöð 2

Anton Sveinn McKee, eini Íslendingurinn sem tryggt hefur sér sæti á Ólympíuleikunum í Tókýó, verður meðal keppenda á Íslandsmeistaramótinu í sundi í Laugardalslaug um helgina.

Anton hefur ekki getað keppt síðustu mánuði vegna kórónuveirufaraldursins og því er eftirvæntingin eftir mótinu um helgina enn meiri en ella. Anton væri nú kominn, eða á leiðinni, til Tókýó á Ólympíuleikana en þeim var frestað um ár vegna faraldursins. Hann hefur verið við æfingar hér heima undanfarið.

„Þetta er bara búið að ganga ágætlega. Æfingaáætlunin er allt öðruvísi en maður var búinn að undirbúa sig fyrir. Það er kannski fínt að fá smáhvíld bráðum en í staðinn er maður búinn að æfa eins og skepna til að nýta tækifærið. Eins skrýtið og það er að segja það þá getur maður snúið því í jákvæðan hlut að vera ekki að fara að keppa á Ólympíuleikunum eftir rúma viku. Maður getur unnið í sínum veikleikum og bætt sig til að koma sterkari til baka eftir eitt ár,“ segir Anton við Júlíönu Þóru Hálfdánardóttur í Sportpakkanum á Stöð 2.

Væri við undirbúning í Asíu ef allt væri eðlilegt

Eins og fyrr segir áttu Ólympíuleikarnir að hefjast á föstudaginn eftir viku en þeim var frestað til 23. júlí á næsta ári.

„Ég væri ekki á Íslandi ef allt væri eðlilegt, heldur í Asíu í góðum undirbúningi og mjög spenntur fyrir því að toppa þarna. En að sama skapi snýst þetta um að gera eins gott úr þessu og hægt er,“ segir Anton, sem hlakkar mikið til að keppa í Laugardalnum um helgina:

„Það eru nokkrir sterkir erlendir keppendur komnir; tveir frá Danmörku og einn frá Tyrklandi, og það verður gaman að fá að keppa með þeim. Þau hafa keppt á Ólympíuleikum og heimsmeistaramótum. Svo er feiknalega sterkt sundfólk á Íslandi í dag sem mun verða þarna og synda hratt. Ég hlakka til að fá að vera aftur í keppnisumhverfi. Þetta er það sem við lifum fyrir. Ástæðan fyrir því að við nennum að mæta snemma á morgunæfingar og busla í þessari laugu. Það skemmtilegast sem ég geri er að keppa – vera þarna með vinum mínum og sjá hvað í mér býr. Ég er mjög spenntur að sjá hvað ég get gert um helgina.“

Anton mun svo taka sér stutt sumarfrí áður en hann byrjar æfingar að nýju. Hann vonast til að geta byrjað að keppa í nýju atvinnumannadeildinni, ISL, í október ef faraldurinn hindrar það ekki en allar æfinga- og keppnisáætlanir Antons munu taka mið af stóru stundinni í Tókýó að ári liðnu.

Klippa: Sportpakkinn - Anton Sveinn keppir um helgina

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×