Golf

Tiger með herkjum í gegnum niður­skurðinn

Anton Ingi Leifsson skrifar
Tiger á hring númer tvö í dag.
Tiger á hring númer tvö í dag. vísir/getty

Tiger Woods komst í gegnum niðurskurðinn á Memorial-mótinu en hann náði sér alls ekki á strik á öðrum hringnum sem fór fram í dag.

Tiger getur skrifað sig í sögubækurnar fari hann með sigur af hólmi í Dublin í Ohio fylki en hann er nú jafn Sam Snead yfir flesta sigra á PGA-mótum eða 82 talsins.

Tiger lék fyrsta hringinn á einu höggi undir pari en hann náði sér ekki á strik í dag. Hann lék á fjórum höggum yfir pari og féll niður um 46 sæti.

Hann rétt slapp í gegnum niðurskurðinn en þeir sem léku á fjórum höggum yfir pari samtals fyrstu tvo hringina eru úr leik.

Það er þó langt fyrir Tiger upp í verðlaunasæti því Ryan Palmer og Tony Finau eru efstir á níu höggum undir pari eftir 36 holur af þeim 52 sem leiknar verða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×