Erlent

Tony Blair segir John Hume hafa talað í sig kjark

Heimir Már Pétursson skrifar
John Hume var leiðtogi hófsamra Sósíal demókrata á Norður Írlandi og vel tengdur hinni kaþólsku bandarísku Kennedy fjölskyldu og Bill Clinton í forsetatíð hans. Clinton kom að því að miðla málum á lokametrum friðarsamninga á Norður Írlandi.
John Hume var leiðtogi hófsamra Sósíal demókrata á Norður Írlandi og vel tengdur hinni kaþólsku bandarísku Kennedy fjölskyldu og Bill Clinton í forsetatíð hans. Clinton kom að því að miðla málum á lokametrum friðarsamninga á Norður Írlandi. Mynd/Charles McQuillan/Getty Images

John Hume sem hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1998 fyrir þátt hans í að koma á friði á Norður Írlandi er látinn 83 ára að aldri. Hann var leiðtogi kaþólskra hófsamra Sósíal demókrata og deildi friðarverðlaununum með David Trimble lávarði og fyrsta ráðherra Norður Írlands og leiðtoga Ulster hreyfingar mótmælenda.

Hume var vel tengdur í Bandaríkjunum og náin vinur hinnar kaþólsku Kennedy fjölskyldu og Bill Clintons þáverandi Bandaríkjaforseta sem aðstoðaði við að miðla málum milli stríðandi fylkinga á Norður Írlandi.

Tony Blair var forsætisráðherra þegar föstudagsins langa friðarsamkomulagið var undirritað og átti sinn þátt í það náðist.

Hume taldi kjarkinn í Tony Blair nýjan forsætisráðherra Bretlands til að treysta á samningamenn Írska lýðveldishersins í viðræðum um frið á Norður Írlandi, sem áratugum saman hafði staðið fyrir hryðjuverkum í Bretlandi.Mynd/Dan Kitwood/Getty Images

„Það var John Hume öðrum fremur sem settist niður með mér og sagði: Ég veit að þú ert nýr forsætisráðherra og ég veit að fjölmargir munu segja þér að þetta sé ógerlegt að þetta er hægt. Það er því rétt hjá þér að gera þetta að forgangsmáli. Þú mátt ekki gefast upp við það. Ég veit af langri reynslu minni á þessu sviði að það verður hægt að koma á friði á þessu stigi," sagði Blair þegar hann minntis Hume í dag.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×