Erlent

Banna reykingar sé ekki hægt að tryggja fjarlægðartakmarkanir

Andri Eysteinsson skrifar
Reykingar hafa verið bannaðar á götum úti, á skemmti- og veitingastöðum.
Reykingar hafa verið bannaðar á götum úti, á skemmti- og veitingastöðum. Getty/EuropaPress

Spænsku héruðin Galisía og Kanaríeyjar hafa ákveðið að banna reykingar á almenningssvæðum vegna ótta um frekari útbreiðslu kórónuveirunnar.

Nær bannið yfir reykingar á götum úti og inni á veitingastöðum og börum ef ekki er hægt að tryggja fjarlægðartakmarkanir. BBC greinir frá.

Yfirvöld í Galísíu í norð-austurhluta landsins tóku fyrst ákvörðunina og fylgdu Kanaríeyjarnar fljótt á eftir en á Spáni hefur veirunni vaxið ásmegin undanfarið og eru ný tilfelli að jafnaði yfir 1.500 á hverjum degi. Alls eru staðfest tilfelli á landinu um 330 þúsund.

Reykingar eru bannaðar á grundvelli þess að dropar geti fylgt með reyknum þegar blásið er frá sér við reykingar. Þar sé þá möguleiki á svokölluðu dropasmiti kórónuveirunnar.

Þá segja heilbrigðisyfirvöld í Galisíu að líkur á smiti séu meiri á meðal reykingafólks vegna snertinga við sígaretturnar og andlitsgrímur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×