Innlent

Ráðherrar sáttir við útkomu hlutafjárútboðsins

Heimir Már Pétursson skrifar

Fjármálaráðherra segir mikla þátttöku almennings í hlutafjárútboði Icelandair vera ánægjulega og endurspegla traust á félaginu. Samgönguráðherra segir mikilvægt að tryggja að hér starfi öflugt innlent flugfélag.

Fjármálaráðherra segir viðtökur almennings í hlutafjárútboðinu sýna trú og traust almennings á félaginu.Vísir/Vilhelm

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra telur að mjög vel hafi tekist til hjá Icelandair. Áberandi þátttaka almennings lýsi miklu trausti hans og trú á framtíð félagsins. Þá hafi safnast það mikið hlutafé að ekki reyni á sölutryggingu ríkisbankanna.

„Ég lít á það mjög jákvæðum augum og ég fagna því líka að félagið getur sótt þarna meira hlutafé en minna þar sem viðbótar þremur milljörðum er bætt við. Sem þýðir að það dregur úr líkum á á að það reyni á ríkisábyrgðina. Þetta er allt mjög jákvætt," segir Bjarni.

Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra tekur í svipaðan streng. Margt rétt hafi verið gert í þessu ferli að háfu félagsins ríkisins og fleiri og ánægjulegt og þátttaka almennings sé ánægjuleg.

Samgönguráðherra telur mikla þátttöku almennings geta endurspeglað vilja hans til að hafa traust flugfélag í starfsemi á Íslandi.Vísir/Vilhelm

„Hann er meiri en maður átti von á. Það er vissulega veruleg áhætta og vissulega ágóðavona. En kannski er þetta líka einhers konar yfirlýsing um að fólk vilji taka þátt í því að við höfum svona öflugan aðila hér innanlands," segir Sigurður Ingi Jóhannsson.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×