Erlent

Handtóku leiðtoga sértrúarsafnaðar í Síberíu

Kjartan Kjartansson skrifar
Einn forsprakka Kirkju síðustu ritningarinnar í haldi rússneskra alríkislögreglumanna í dag.
Einn forsprakka Kirkju síðustu ritningarinnar í haldi rússneskra alríkislögreglumanna í dag. Vísir/Getty

Rússneska lögreglan handtók þekktan leiðtoga sértrúarsafnaðar í afskekktum hluta Síberíu í dag. Trúarleiðtoginn er grunaður um að hafa skaðað heilsu fylgjenda sinna og beitt þá sálfræðilegum þrýstingi til að fá þá til að láta fé af hendi rakna.

Sergei Torop var umferðarlögreglumaður þar til hann stofnaði söfnuðinn Kirkju síðustu ritningarinnar í Krasnojarsk-héraði í óbyggðum Síberíu árið 1991, árið sem Sovétríkin liðuðust í sundur. Þúsundir fylgjenda Torop þekkja hann undir nafninu Vissarion en hann heldur því fram að hann sé kristur endurfæddur.

Auk Torop handtók lögreglan tvo aðra leiðtoga safnaðarins, Vadim Redkin og Vladímír Vedernikov, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Þremenningarnir eru sagðir eiga yfir höfði sér allt að tólf ára fangelsi verði þeir fundnir sekir um brotin sem þeir eru grunaðir um að hafa framið.

Í umfjöllun The Guardian um söfnuðinn frá árinu 2015 kom fram að fylgjendur Torop kæmu alls staðar að úr heiminum. Þeir þyrftu að afneita því sem söfnuðurinn telur syndir nútímalífs, þar á meðal reykingum, áfengisdrykkju og peningum. Í staðinn búa fylgjendurnir í timburkofum í þorpinu Petropavlovka og stunda landbúnað án nútímatækni.

Torop messar yfir söfnuði sínum árið 2002. Hann taldi að geimverur myndu láta söfnuðinn vita af yfirvofandi heimsenda árið eftir.Vísir/Getty

Torop sjálfur er þó ekki sagður búa í Petropavlovka heldur í því sem er nefnt „Heimili dögunarinnar“ með um fimmtíu nánustu fylgjendum sínum. Jól eru ekki haldin í Kirkju síðustu ritningarinnar en þess í stað heldur söfnuðurinn 14. janúar hátíðlegan, afmælisdag Torop.

Hann boðar fylgjendum sínum heimsendi í miklu flóði sem muni tortíma mannkyninu en eira söfnuðinum. Þeir muni svo dreifa sér frá fyrirheitna landinu sem þeir telja þorpið sitt vera og fjölga mannkyninu á jörðinni og í alheiminum.

Í spilaranum hér fyrir neðan má sjá umfjöllun Vice um Kirkju síðustu ritningarinnar frá árinu 2012.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×