Heimsmarkmiðin

Um 25 milljónir manna í Austur-Afríku búa við sult vegna þurrka

Heimsljós
Kheira Osman Yusuf

Verstu þurrkar í fjörutíu ár hafa leitt til alvarlegs matarskorts í austurhluta Afríku, einkum í Eþíópíu, Kenía, Sómalíu og Sómalílandi. Að mati Alþjóðabjörgunarnefndarinnar, IRC, hafa nú þegar þrettán milljónir manna sáralítið að borða og búa aukin heldur við vatnsskort. Óttast er að ástandið versni á næstu mánuðum.

Alvarleg vannæring meðal íbúa fyrrnefndra þriggja þjóða hefur aldrei verið meiri, segir í frétt frá IRC, sem er að auka hjálparstarf í þessum heimshluta og birtir ákall til framlagsríkja og alþjóðasamfélagsins að rétta fram hjálparhönd til að vernda líf, lífsviðurværi og afstýra hungursneyð. Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNEP) varaði við mjög alvarlegu ástandi í löndunum í austanverðri Afríku vegna þurrka þegar á síðasta ári.

„La Nina veðurfyrirbærið og loftslagsbreytingar hafa leitt til þess að þurrkar hafa ekki verið meiri í Eþíópíu í rúmlega fjóra áratugi,“ segir Frank McManus umdæmisstjóri IRC í Eþíópíu. Hann bætir við að rúmlega þrjú hundruð þúsund manns hafi lent á vergangi í leit að vatni, fæði og nýjum haga fyrir búpening. Hann bendir á að þörfin fyrir mannúðaraðstoð aukist þegar þurrkar bætast við stríðsátökin í landinu sem ekki sér fyrir endann á.

„Stríðið í Úkraínu gerir illt verra. Aukinn eldsneytiskostnaður getur leitt til hækkandi verðs á matvælum og fæstir geta keypt hveiti sem hefur að langmestu leyti verið flutt inn frá Úkraínu og Rússlandi.“


Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×