Viðskipti innlent

Útrýma eitraðri vinnustaðamenningu með örfræðslu og leikjum

Lovísa Arnardóttir skrifar
Þórey segir að Alda hjálpi fyrirtækjum með yfrsýn og að tryggja fjölbreytileika og koma í veg fyrir eitraða vinnustaðamenningu.
Þórey segir að Alda hjálpi fyrirtækjum með yfrsýn og að tryggja fjölbreytileika og koma í veg fyrir eitraða vinnustaðamenningu. Vísir/Sigurjón

Með örfræðslu, farsímaleikjum og spurningalista ætlar fyrirtækið Empower að útrýma eitraðri vinnustaðamenningu. 

Nýsköpunarfyrirtækið Empower setti nýlega hugbúnaðarlausnina Öldu á markað. Hugbúnaðarlausninni er ætlað að útrýma eitraðri vinnustaðamenningu, tryggja inngildingu og að hjálpa vinnustöðum að ná hámarksárangri með fjölbreyttum teymum. Hugbúnaðurinn var þróaður og prófaður á Íslandi og býður upp á mælaborð, kannanir, markmiðasetningu, örfræðslu og aðgerðaráætlanir sérsniðna með gervigreind.

„Við gerum það með því að hjálpa fyrirtækjum að ná yfirsýn yfir fjölbreytni, jafnrétti og inngildingu,“ segir Þórey Vilhjálmsdóttir framkvæmdastjóri Empower en það gera þau með mælaborði á heimasíðu sinni og fjölbreyttum verkefnum sem standa fyrirtækjunum til boða. 

Þórey og Sigyn eru stofnendur Empower. Vísir/Sigurjón

Hægt er að kalla fram gögn á mælaborði og fylgjast með þróuninni samhliða innleiðingu á breytingum. Byggt á þeim mælingum geta stjórnendur fyrirtækja og stofnana sett sér markmið og kallað eftir aðgerðaráætlunum sem eru sérsniðnar af gervigreind

Þórey hefur um árabil sinnt jafnréttisfræðslu í stofnunum og fyrirtækjum og segir að hún hafi verið farin að merkja gat á markaði. Þörf sem ekki var verið að uppfylla og telur að Alda mæti þeirri þörf.

„Þetta eru tvær eða þrjár mínútur í einu þar sem er verið að fræða um fjölbreytileika og hvernig við getum gert vinnustaðinn meira inngildandi. Þetta er frá áhrifum frá TikTok og Instagram og þannig erum við að gera efni sem er eins og það sem við sjálf viljum sækja okkur,“ segir Þórey en sem dæmi um það efni sem er í boði eru farsímaleikir þar sem fólk er spurt um upplifun sína á vinnustað, eins og hvort þau hafi þurft að breyta nafni sínu, svara fyrir allt kyn sitt eða kynþátt eða hvort það hafi þurft að fela sitt sanna sjálf vegna fordóma.

Alda nálgast viðfangsefnin á ólíkan hátt og tekur örfræðslan á sig ýmsar myndir, svo sem í formi tölvuleikja, myndbanda og teiknimyndasagna svo fátt eitt sé nefnt. Örfræðslur Öldu fjalla meðal annars um persónufornöfn, forréttindafirringu og kynslóðabil á vinnustöðum.

Þá eru allir starfsmenn beðnir um að svara spurningalista, sem er ekki rekjanlegur, þannig fyrirtækin hafi meiri upplýsingar um starfsfólk sitt og geti aðlagað fræðslu og vinnustaðinn að starfsfólki sínu.

Hugbúnaðurinn er hugsaður sem heildræn nálgun fyrir stjórnendur til að skapa heilbrigða vinnustaðamenningu með hjálp fjölbreytta teyma. Samstarfsaðilar í verkefninu eru Háskóli Íslands, Samtökin 78, og Þroskahjálp en þau aðstoðuðu meðal annars við að útbúa spurningarnar sem eru í leiknum.

Stefna á markað í Evrópu og Bandaríkjunum

Þórey segir hugbúnaðinn í stöðugri þróun. Það sé hægt að bæta við spurningum í leikinn og tungumálum þannig að efnið sé aðgengilegt sem flestum. Eins og stendur er það núna á íslensku, ensku og pólsku.

„Við erum alltaf að gæta þess að fylgjast með nýjustu rannsóknum og því nýjasta sem er að gerast til að tryggja að við séum ekki að skilja neina hópa út undan. Við erum alltaf að passa okkur á því. Það er mjög mikilvægt,“ segir Þórey en markmið Empower er að koma lausninni á markað í bæði Evrópu og Bandaríkjunum. Búið er að taka fyrstu skrefin í Evrópu en stefnt er á Bandaríkin eftir áramót.

Á síðastliðnu ári tryggði Empower sér 300 milljón króna fjármögnun frá Frumtaki og Tennin. Í desember í fyrra tryggði fyrirtækið sér 50 milljón króna styrk frá Tækniþróunarsjóði. Í dag eru starfandi 15 í Alda-teyminu en það samanstendur af hugbúnaðarsérfræðingum, sérfræðingum í jafnrétti og fjölbreytni, hönnuðum, sölu- og markaðsfólki.


Tengdar fréttir

Adda og Hanna til Empower

Nýsköpunarfyrirtækið Empower hefur ráðið þær Öddu Guðrúnu Gylfadóttur og Hönnu Alexöndru Helgadóttur sem sérfræðinga í stafrænni örfræðslu og efnissköpun. Fyrirhugað er að setja hugbúnað Empower á alþjóðamarkað á næsta ári. 

Met­fjöldi ís­lenskra fyrir­tækja á tækni­ráð­stefnu í Helsinki

Sprota- og tækniráðstefnan Slush fer fram um þessar mundir í Helsinki í Finnlandi. Fulltrúar frá 65 íslenskum fyrirtækjum eru staddir þar úti en aldrei hafa jafn mörg fyrirtæki sent fulltrúa á ráðstefnuna. Rúmlega hundrað Íslendingar skipta sendinefndina. 

Fjórir hug­búnaðar­sér­fræðingar til Empower

Nýtt starfsfólk nýsköpunarfyrirtækisins Empower vinnur að þróun hugbúnaðarlausnarinnar Empower Now, sem fer á alþjóðlegan markað á næsta ári. Lausnin gerir fyrirtækjum og stofnunum á alþjóðavísu kleift að ná yfirsýn yfir stöðu jafnréttis og fjölbreytni, setja mælanleg markmið og innleiða örfræðslu fyrir starfsfólk í gegnum stafrænar leiðir.

Empower stækkar: Stoltar, stórhuga og í sókn

Þær eru stórhuga konurnar sem stýra Empower enda ekki á hverjum degi sem tilkynnt er um hundruði milljóna í fjármögnun til félags sem stofnað er af konum og stjórnað af konum. Fjármagn er jú oft konum í óhag.

Sigyn til Empower

Sigyn Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hugbúnaðarþróunar hjá Empower þar sem hún mun leiða þróun jafnréttishugbúnaðarins Empower Now.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×