Viðskipti innlent

Andrés húðskammar Lyfja­stofnun

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Andrés Magnússon gagnrýnir Lyfjastofnun harðlega fyrir hækkun gjaldskrár um áramótin.
Andrés Magnússon gagnrýnir Lyfjastofnun harðlega fyrir hækkun gjaldskrár um áramótin.

Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu gagnrýnir Lyfjastofnun fyrir 8,7 prósenta hækkun á gjaldskrá um áramótin. Allir verði að leggja sitt af mörkum í baráttu við verðbólgu og háa vexti, líka Lyfjastofnun.

Ný gjaldskrá Lyfjastofnunar tók gildi um ára´mot. Um er að ræða annars vegar gjaldskrá fyrir markaðsleyfi, árgjöld og önnur gjöld vegna lyfja sem Lyfjastofnun innheimtir og hins vegar gjaldskrá vegna eftirlits stofnunarinnar með lækningatækjum.

Fram kemur á vefsíðu Lyfjastofnunar að árgjöld lyfja hækki ekki á milli ára en að öðru leyti sé meðaltalshækkun liða gjaldskránna 8,7 prósent á milli ára. Hækkunin sé í samræmi við verðlagsforsendur fjárlaga.

Andrés Magnússon er framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. Hann gagnrýnir hækkunina harðlega í aðsendri grein á Vísi.

„Mikilvægasta verkefnið við þær kjaraviðræður sem nú standa yfir er að ná tökum á þeirri miklu verðbólgu og því háa vaxtastigi sem íslenskt samfélag hefur verið að glíma við undanfarin misseri. Bæði verðbólgan og vextirnir hafa komið hart niður á heimilum jafnt sem fyrirtækjum eins og alkunna er. Markmiðið er að klára sem fyrst kjarasamninga sem skapað geta grundvöll að fyrirsjáanleika og stöðugleika í hagkerfinu, nokkuð sem allir munu njóta góðs af, bæði heimili og fyrirtæki, ekki síst þau fyrirtæki sem eru lítil og meðalstór. Aðilar vinnumarkaðarins eru sammála í þessu efni og það eru stjórnvöld einnig þó að nokkur meiningamunur kunni að vera um hvaða leiðir eru bestar í þessu efni,“ segir Andrés í grein sinni.

Ef þetta markmið eigi að nást þurfi allir að spila með, ekki síst opinberir aðilar.

„Af þeirri ástæðu verður að gera kröfu um að opinberar stofnanir haldi aftur af sér við breytingar á gjaldskrám sínum og styðji þar með markmið kjarasamninga. Ef marka má viðbrögð forsvarsmanna ríkis og sveitarfélagana finna opinberir aðilar mjög til ábyrgðar sinnar í þessu efni og er það vel.“

Allar breytingar hafi áhrif á lyfjaverð

Hann segir a.m.k. eina ríkisstofnun finnast hún undanþegin því að taka þátt í þessu sameiginlega verkefni.

„En það er Lyfjastofnun. Stofnunin hefur það hlutverk m.a að hafa eftirlit með starfsemi lyfjafyrirtækja, bæði á smásölu- og heildsölumarkaði og samkvæmt upplýsingum á heimasíðu stofnunarinnar starfa þar „rúmlega 85 manns“.“

Andrés segir kostnað við rekstur Lyfjastofnunar að verulegu leyti borinn uppi af lyfjafyrirtækjunum, en gjaldskrá stofnunarinnar sé mikil að vöxtum.

„Allar breytingar á gjaldskrá stofnunarinnar hafa því áhrif á lyfjaverð á Íslandi með beinum eða óbeinum hætti. Gjaldskrá Lyfjastofnunar hækkaði um 8,7% nú um áramótin, sem er langt umfram það sem telst ásættanlegt í viðræðum aðila vinnumarkaðarins um nýjan kjarasamning. Ef víðtæk sátt á að nást í baráttunni gegn verðbólgu og háum vöxtum verða allir að leggja sitt af mörkum – einnig Lyfjastofnun.“





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×