Viðskipti erlent

Vill færa skráningu Tesla til Texas

Samúel Karl Ólason skrifar
Elon Musk segir að hluthafafundur verði haldinn um það að flytja skráningu Tesla frá Delaware og til Texas. Það er eftir að dómari í Delaware birti úrskurð í máli sem gæti kostað Musk tugi milljarða dala.
Elon Musk segir að hluthafafundur verði haldinn um það að flytja skráningu Tesla frá Delaware og til Texas. Það er eftir að dómari í Delaware birti úrskurð í máli sem gæti kostað Musk tugi milljarða dala. AP/Leon Neal

Auðjöfurinn Elon Musk vill færa skráningu Tesla frá Delaware og til Texas. Það er eftir að dómari í Delaware komst að þeirri niðurstöðu að 55 milljarða dala kaupréttarsamningur sem gerður var við hann árið 2018 hefði verið ólöglegur.

Samningurinn var einn sá stærsti sem hefur verið gerður en hluthafi í Tesla höfðaði mál i skattaparadísinni Delaware, þar sem fyrirtækið er skráð. Hann sagði stjórn fyrirtækisins hafa afvegaleitt hluthafa og farið gegn skyldum sínum.

Úrskurðurinn þýðir að Musk geti orðið af upphæð sem samsvarar um 7,5 billjónum króna.

Eftir að úrskurðurinn var birtur skrifaði Musk á X, samfélagsmiðil sinn, að fólk ætti ekki að skrá fyrirtæki sín í Delaware.

Sjá einnig: Musk sjö og hálfri billjón króna fátækari

Höfuðstöðvar Tesla eru í Texas og í gær hélt Musk könnun á X þar sem hann spurði hvort skrá ætti félagið þar einnig. Meirihluti þeirra sem tóku þátt í könnuninni sögðu já.

Musk sagði svo í dag að farið yrði í það að halda hluthafafund um að skrá Tesla í Texas.

Á undanförnum árum hefur Musk fært starfsemi nokkurra fyrirtækja sinna til Texas. Hann færði höfuðstöðvar Tesla þangað frá Kaliforníu árið 2021 og SpaceX er sömuleiðis með umfangsmiklar starfsemi í ríkinu.

Í samtali við Wall Street Journal segir lagaprófessor sem sérhæfir sig í málum sem þessum að það að færa skráningu Tesla myndi engin áhrif hafa á úrskurð dómarans í Delaware. Hann segir réttarkerfið í Delaware hannað til að vernda hagsmuni hluthafa og dregur í efa að hluthafar Tesla muni samþykkja flutninginn út af því að Musk sé ósáttur við einn tiltekinn dómara.

Um 68 prósent af fimm hundruð verðmætustu fyrirtækjum Bandaríkjanna eru skráð í Delaware, samkvæmt frétt WSJ. Árið 2022 voru fjögur af hverjum fimm nýjum fyrirtækjum í Bandaríkjunum skráð þar og réttarkerfið í Delaware hefur um árabil verið þar sem stærstu dómsmál sem tengjast samruna fyrirtækja og yfirtökum verið tekin fyrir þar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×