Viðskipti innlent

Byggðirnar bíða spenntar fregna um hvort loðnuganga sé fundin

Kristján Már Unnarsson skrifar
Skipverjar á Hákoni EA voru að koma af kolmunnaveiðum við Færeyjar. Þeir bíða þess núna hvort næstu túrar verði á loðnumið. Myndin var tekin á Vogabakka í Reykjavík í janúar í fyrra.
Skipverjar á Hákoni EA voru að koma af kolmunnaveiðum við Færeyjar. Þeir bíða þess núna hvort næstu túrar verði á loðnumið. Myndin var tekin á Vogabakka í Reykjavík í janúar í fyrra. Sigurjón Ólason

Vonir um loðnuvertíð þennan veturinn hafa glæðst eftir að fiskiskip urðu vör við flekki djúpt út af Suðausturlandi í gær, sem líklegt þykir að séu stórar loðnutorfur. Í loðnubyggðum landsins bíða menn spenntir fregna um hvort loðna sé fundin í nægilegu magni til að leyfa veiðar.

Í fréttum Stöðvar 2 var fjallað um þessar nýjustu vendingar í loðnuleitinni. Það sem kveikt hefur vonarneistann er það sem skipstjórar þriggja uppsjávarveiðiskipa sáu á svæðinu undan Suðausturlandi þegar þau voru á leið til Austfjarðahafna af kolmunnaveiðum sunnan Færeyja.

Venus NS og Svanur RE.Sigurjón Ólason

Skipstjórinn á Svani RE sá fyrstur lóðningarnar í gær á syðri hluta Rauðatorgsins. Þegar fréttastofa talaði við hann í dag var hann nokkuð viss um að þetta væri loðna. Í gærkvöldi fóru svo Hákon EA og Hoffell SU yfir svæðið og sáu bæði skipin torfur á Rósagarðinum en tólf mílur voru á milli skipanna.

Það vildi svo til að Bjarni Sæmundsson var við umhverfisrannsóknir undan Austfjörðum og ákváð Hafrannsóknastofnun strax í gærkvöldi að senda hann á þessar slóðir til að kanna þetta betur. Einnig var grænlenska skipinu Polar Ammassak, sem var við loðnuleit út af Vestfjörðum, snúið til Austfjarða, en hér má fylgjast með siglingarferlum skipanna.

Rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson var sent á svæðið þar sem talið er að loðnutorfurnar séu.Sigurborg Jóh.

Bæði skipin verða væntanlega komin á Rósagarðinn síðar kvöld og geta þá staðfest hvort þarna sé loðna á ferðinni. Þau munu síðan taka 1-2 daga í að mæla hvað þetta er mikið og Hafrannsóknastofnun síðan gefa út, sennilega öðru hvoru megin við helgina, hvort þetta sé nóg til að standa undir veiðum.

Margir bíða spenntir eftir niðurstöðinni, ekki síst í loðnubæjunum, en loðnuvinnslur eru núna á níu stöðum á landinu. Í öllum þessum byggðum eru menn sagðir í startholunum, tilbúnir að hefja loðnuvertíð. Ef grænt ljós verður gefið á veiðar þá gætu orðið uppgrip í þessum bæjum næstu fjórar til fimm vikur og peningarnir flætt inn í byggðarlögin.

Loðnuvinnslur eru núna í þessum niu byggðum á landinu.Grafík/Sara Rut Fannarsdóttir

En þetta gæti líka farið á hinn veginn; enginn kvóti, ekkert loðnuævintýri, og þá verður vistin dauflegri.

Ef staðfesting fæst á því að stór loðnuganga sé þarna á ferðinni undan Suðausturlandi má segja að hún sé á hefðbundinni gönguslóð, þó ef til vill heldur fjær landinu en oft áður. Fylgi loðnan sínu venjulega göngumynstri má gera ráð fyrir að hún muni fljótlega ganga upp að suðausturströndinni, þéttast þar, og synda síðan vestur með suðurströndinni, út fyrir Reykjanes, inn á Faxaflóa og jafnvel norður fyrir Snæfellsnes áður en hún hrygnir og drepst.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Rákust á stóra torfu og fara í loðnumælingar

Fiskiskip á kolmunnaveiðum rakst á talsvert stóra uppsjávarfiskstorfu við aukaleit undan suðausturströnd landsins í gær. Hafrannsóknarstofnun mun hefja formlegar loðnumælingar í dag. Sviðsstjóri hjá Hafró segir um jákvæðar fréttir að ræða fyrir mögulega loðnuvertíð.

Sáralítið mælist af loðnu

Önnur yfirferð loðnumælinga á árinu er langt komin og segir í tilkynningu Hafrannsóknarstofnunnar að „mjög lítið“ hafi mælst af loðnu. Eftir standi að fara yfir Vestfjarðamið og Suðausturmið.

Halda í vonina um loðnuvertíð í vetur

Vonir um loðnuvertíð þennan veturinn dvínuðu í dag þegar Hafrannsóknastofnun tilkynnti að sáralítið hefði fundist af loðnu í þeirri loðnuleit sem núna stendur yfir. Útgerðarmenn halda þó enn í vonina um að loðnan finnist og að hægt verði að hefja veiðar.

Óvænt loðna í Húnaflóa ávísun á mikil verðmæti

Miklar loðnutorfur hafa óvænt fundist norður af Húnaflóa og tilkynnti Hafrannsóknastofnun í dag að búast mætti við að minnsta kosti eitthundrað þúsund tonna aukningu loðnukvótans. Viðbótin gæti skilað tíu milljarða króna útflutningsverðmæti.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×