Golf

Tiger Woods segist vera verkjalaus

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tiger Woods var brosmildur á blaðamannafundinum. Hann vonast eftir bjartari tímum.
Tiger Woods var brosmildur á blaðamannafundinum. Hann vonast eftir bjartari tímum. AP/Ryan Kang

Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods er að fara að taka þátt í sínu fyrsta golfmóti síðan í desember. Hann keppir á Genesis Invitational mótinu sem hefst í dag.

Tiger er að ná sér eftir aðgerð á ökkla og það var gott hljóð í honum fyrir mótið. Tiger segist vera verkjalaus en að hann sé enn að ná áttum eftir skurðaðgerðina sem var framkvæmd í apríl á síðasta ári.

Woods hefur tekið takmarkað þátt í mótaröðinni frá árinu 2021 eða síðan að hann meiddist illa á fæti þegar hann keyrði bílinn sinn út af veginum.

„Ég finn ekki lengur til í ökklanum. Beinin eru ekki lengur að nuddast saman. Ég er að átta mig á skrokknum mínum á ný því aðrir hlutar hans hafa fengið að þola ýmislegt undanfarin ár,“ sagði Tiger Woods og segir að hann sé í svolitlum vandræðum með bakið sitt.

Það síðasta sem Tiger er að fara gera er að gefast upp og hætta að spila golf.

„Ég elska ennþá að keppa og elska að spila golf. Ég elska það að fá að að vera hluti af golfheiminum. Þetta er íþrótt ævi minnar og ég vil aldrei hætta að spila golf,“ sagði Woods. Hann ætlar sér að taka þátt í einu móti á mánuði á þessu ári.

Woods vann síðasta PGA mót þegar hann bar sigur úr býtum á Zozo mótinu í Japan árið 2019. Með því jafnaði hann við met Sam Snead en báðir hafa unnið 82 mót á PGA mótaröðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×