Golf

Fyrr­verandi útkastari vann sitt fyrsta PGA-mót

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jake Knapp fékk steypibað eftir að hann tryggði sér sigur á Mexico Open.
Jake Knapp fékk steypibað eftir að hann tryggði sér sigur á Mexico Open. getty/Orlando Ramirez

Bandaríkjamaðurinn Jake Knapp vann sitt fyrsta mót á PGA-mótaröðinni um helgina. Ekki eru nema þrjú ár síðan hann réði sig sem dyravörð á skemmtistað.

Knapp, sem er 29 ára, var með fjögurra högga forystu fyrir lokahringinn á Mexico Open. Forysta hans hvarf hins vegar á fyrstu sjö holunum á lokahringnum. En Knapp náði sér aftur á strik og endaði á nítján höggum undir pari, tveimur höggum á undan Sami Valimaki frá Finnlandi.

„Ég var kannski ekki upp á mitt besta, það er ljóst. Ég vissi að þetta yrði spennandi og erfitt. En ég var mjög hreykinn af því hvernig ég spilaði undir lokin,“ sagði Knapp.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar hjá honum á undanförnum árum. Fyrir þremur árum mistókst honum að tryggja sér þátttökurétt á PGA-mótaröðinni og réði sig í kjölfarið sem dyravörður á skemmtistað.

„Þeir þurftu öryggisvörð og ég sagði að ég vissi ekki hvort ég væri nógu stór en ég gæti staðið þarna og þóst vera harður,“ sagði Knapp.

Þrír af átta sigurvegurum á PGA-mótaröðinni á þessu ári hafa unnið sitt fyrsta mót á ferlinum. Næsta mót á PGA-mótaröðinni, Cognizant Classic, er um næstu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×