Viðskipti erlent

Um­fangs­miklar upp­sagnir hjá PlayStation

Samúel Karl Ólason skrifar
Jim Ryan, fráfarandi yfirmaður Sony Interactive Entertainment.
Jim Ryan, fráfarandi yfirmaður Sony Interactive Entertainment. EPA/CAROLINE BREHMAN

Jim Ryan, fráfarandi yfirmaður Sony Interactive Entertainment, sem er í raun PlayStation, tilkynnti í dag að stórum hluta starfsmanna félagsins yrði sagt upp. Um er að ræða um níu hundruð manns, sem samsvarar um átta prósentum af öllum starfsmönnum SIE.

Þetta á við skrifstofur SIE víðsvegar um heiminn og hjá tengdum leikjaframleiðendum sem framleiða leiki fyrir PlayStation. Firesprite, leikjafyrirtæki í Lundúnum verður alfarið lokað. Það fyrirtæki hefur að undanförnu framleitt nokkra sýndarveruleikaleiki fyrir PSVR2.

Blaðamaður Bloomberg segir að einnig muni koma til uppsagna hjá Insomniac, sem gerðu Spider-Man leikina, Naughty Dog, sem gerðu Last of Us og Guerrilla, sem gerðu Horizon leikina. Þetta eru meðal vinsælustu leikjaseríum Sony.

Ryan birti í dag yfirlýsingu og tölvupóst sem hann hafði sent á alla starfsmenn. Hann sagði ákvörðunina hafa verið erfiða en að starfsumhverfi leikjafyrirtækja hefði breyst mjög og byggja þyrfti SIE fyrir það sem koma skal. Í póstinum sagði hann þessar aðgerðir óhjákvæmilegar.

Yfirmaður PlayStation Studios, Hermen Hulst, birti einnig yfirlýsingu í dag. Þar sagði hann að teknar hefðu verið ákvarðanir um að hætta við framleiðslu einhverra leikja, án þess þó að segja hvaða leiki um væri að ræða.

Fyrr í þessum mánuði gaf Sony út að sala á PlayStation 5 leikjatölvum hefði ekki staðist væntingar kringum jólin í fyrra.

Þúsund sagt upp í geiranum

Forsvarsmenn fyrirtækja sem framleiða og gefa út tölvuleiki hafa að undanförnu tilkynnt umfangsmiklar uppsagnir og sparnaðaraðgerðir. Til að mynda var um nítján hundrað manns nýverið sagt upp hjá Microsoft og þar af unnu flestir hjá Activision-Blizzard, sem Microsoft fékk nýverið að taka yfir.

Áætlað er að um tíu þúsund starfsmenn tölvuleikjaframleiðenda hafi misst vinnuna í fyrra. Þessi þróun hefur haldið áfram á þessu ári.

Að hluta til hafa þessar uppsagnir verið raktar til faraldurs Covid-19. Þá hafi leikjafyrirtæki vaxið of mikið, ráðið of marga starfsmenn og eytt of miklum peningum. Þá hafi þessi fyrirtæki lent í vandræðum þegar eftirspurn dróst saman í kjölfar faraldursins.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×