Viðskipti innlent

Skoða enn hvort Sam­herji og Síldar­vinnslan séu sama fyrir­tækið

Árni Sæberg skrifar
Gunnþór Ingvason er forstjóri Síldarvinnslunnar og Þorsteinn Már Baldvinsson er forstjóri Samherja.
Gunnþór Ingvason er forstjóri Síldarvinnslunnar og Þorsteinn Már Baldvinsson er forstjóri Samherja. vísir/arnar/vilhelm

Samkeppniseftirlitið hefur hafið athugun á því hvort samband Samherja og Síldarvinnslunnar sé svo náið að félögin jafngildi einni efnahagslegri einingu en ekki samstarfi sjálfstæðra keppinauta.

Í tilkynningu á vef Samkeppniseftirlitsins segir að tilefnið sé að eftirlitinu hafi borist tilkynning um kaup Síldarvinnslunnar hf. á helmingshlut í Ice Fresh Seafood ehf. og fleiri félögum af Samherja hf. 

Með þeim kaupum muni sjávarútvegsfyrirtækin fara með sameiginleg yfirráð í Ice Fresh Seafood og það félag framvegis sjá um sölu og markaðssetningu þeirra afurða sem bæði Samherji og Síldarvinnslan framleiða, það er íslenskar sjávarafurðir.

Ekki fyrsta rannsóknin

Samkeppniseftirlitið hefur áður fjallað um tengsl milli Síldarvinnslunnar og Samherja, meðal annars í ákvörðunum vegna samruna Bergs-Hugins ehf. og Bergs ehf. árið 2021 og vegna samruna Síldarvinnslunnar hf. og Vísis hf. árið 2022.

Í báðum tilfellum taldi Samkeppniseftirlitið ekki tilefni til að aðhafast sérstaklega.

Í ákvörðunum tveimur var hins vegar gerð grein fyrir talsverðum stjórnunar-, eignar- og viðskiptatengslum milli Síldarvinnslunnar og Samherja, ásamt Gjögur hf./Kjálkanesi hf. 

Í tilkynningunni nú segir þessi atriði hafi verið talin veita vísbendingu um að stofnast hafi mögulega til yfirráða yfir Síldarvinnslunni umfram það sem áður hefur komið fram í tilkynningum til Samkeppniseftirlitsins. Ekki hafi hins vegar verið talin þörf á því að leiða þetta til lykta í fyrri samrunamálum.

Aftur sérstakt athugunarefni

Þá segir að tilkynningarskyldir samrunar eigi sér stað samkvæmt samkeppnislögum þegar breytingar verða á yfirráðum. Eitt af þeim atriðum sem þarfnist nánari rannsóknar í þessu máli séu tengsl Samherja og Síldarvinnslunnar, bæði fyrir og eftir samrunann, þar með talið hvaða áhrif kaup Síldarvinnslunnar og sameiginleg yfirráð með Samherja í Ice Fresh Seafood hafi í því samhengi.

Það verði því sérstakt athugunarefni hvort slík tengsl séu til staðar, eða séu að myndast með kaupunum, að líta beri á félögin sem eitt og sama fyrirtækið, sem í samkeppnisrétti sé nefnt ein efnahagsleg eining, það er hvort samband þeirra sé svo náið að það jafngildir einni efnahagslegri einingu en ekki samstarfi sjálfstæðra keppinauta.

Óska eftir umsögnum

í tilkynningunni segir að Samkeppniseftirlitið veiti hér með hverjum þeim sem hagsmuni eða áhuga hefur færi á því að koma á framfæri umsögnum, athugasemdum og/eða sjónarmiðum um viðskiptin, svo sem um eignar- og stjórnunarleg tengsl þessara fyrirtækja, hvort líta megi á þau sem eina efnahagslega einingu í skilningi samkeppnislag, áhrif samrunans, stöðu markaða og virkni samkeppni á viðkomandi mörkuðum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×