Viðskipti innlent

Opnar Blush-verslun á Akur­eyri

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Gerður er á leið norður í næstu viku til að gera klárt fyrir opnun á nýrri verslun Blush á Akureyri. Hún vonast til að geta opnað í lok næstu viku eða byrjun þarnæstu. 
Gerður er á leið norður í næstu viku til að gera klárt fyrir opnun á nýrri verslun Blush á Akureyri. Hún vonast til að geta opnað í lok næstu viku eða byrjun þarnæstu.  Vísir/Einar

Gerður Huld Arinbjarnardóttir, betur þekkt sem Gerður í Blush, hyggst opna kynlífstækjaverslun á Akureyri á næstu vikum. Verslunin verður staðsett á Glerártorgi en þó í svolitlu næði. 

„Við erum á að stofna á að opna um miðjan mars en það er ekki komin endanleg dagsetning“, segir Gerður í samtali við fréttastofu. 

 „Við fengum húsnæðið afhent 1.mars og það er allt á fullu, verið að setja upp innréttingar og svona. Ég er sjálf á leiðinni norður í næstu viku til að klára að græja og gera. Vonandi getum við opnað í næstu eða byrjun þarnæstu viku.“

Langþráður draumur að rætast

Gerður hefur að sögn lengi gælt við að opna verslun fyrir norðan. Hún hafi fundið fyrir mikilli eftirspurn en ekki fundið hentugt húsnæði fyrr en nú. Verslunin verður staðsett í verslunarmiðstöðinni Glerártorgi en þó er gengið inn að utan.

„Við erum með sér inngang og sér bílastæði beint fyrir utan, vísum út á Gleránna,“ útskýrir Gerður.

„Svo það er hentugt fyrir kynlífstækjaverslun að því leitinu til að fólk getur bara hoppað inn, en þarf ekki að ganga í gegnum alla verslunarmiðstöðina. Pínu næði.“

Verslun Blush á Dalvegi í Reykjavík er tæpir 900 fermetrar og gríðarlega íburðarmikil. Húsnæðið í versluninni á Akureyri er talsvert minna í fermetrafjölda en Gerður segir að þeim mun meira verði lagt í hönnun innandyra.

„Planið er að þetta endurspegli verslunina fyrir sunnan. Við stefnum á að vera með svona sjötíu prósent af vöruúrvalinu fyrir norðan en svo er hægt að fá sendar allar vörur með dagsfyrirvara.“

Loksins ástæða til að fara oftar til Akureyrar

Líkt og áður segir hefur Gerður fundið mikla eftirspurn eftir kynlífstækjaverslun fyrir norðan en hún segir einnig dýpri ástæður fyrir opnuninni.

„Ég er sjálf frá Akureyri og hef sterkar tengingar þangað. Stór hluti af minni fjölskyldu, ættingjum og vinum býr þar og nú hef ég loks ástæðu til að koma ennþá oftar til Akureyrar.

Gerður hvetur fólk til að fylgjast með á Blush á samfélagsmiðlum til að fá nánari upplýsingar um dagsetningu á opnun nýju verslunarinnar þegar hún liggur fyrir. 


Tengdar fréttir

Hló og grét þegar hún seldi fyrir milljón á einum degi

„Jú það kom alveg tími þar sem ég efaðist. Hvort ég ætti að halda áfram eða hætta. Kannski gæti ég þetta ekkert, mér fannst ég ekki nógu sæt eða vita nógu mikið og svo framvegis,“ segir Gerður Huld Arinbjarnardóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Blush.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×