Viðskipti innlent

Versluninni Borg í Gríms­nesi lokað

Kolbeinn Tumi Daðason og Árni Sæberg skrifa
Verslunin Borg á Grímsnei hefur verið viðkomustaður ferðalanga á Suðurlandi um árabil.
Verslunin Borg á Grímsnei hefur verið viðkomustaður ferðalanga á Suðurlandi um árabil. Vísir/Magnús Hlynur

Eigendur verslunarinnar á Borg í Grímsnesi segjast ekki lengur geta barist fyrir lífinu í búðinni. Brunaútsala verður næstu daga en versluninni verður lokað á næstunni.

„Skjótt skipast veður í lofti og það er með mikinn harm í brjósti sem þessi póstur er skrifaður. Nú er svo komið að við stöndum frammi fyrir kveðjustund,“ segja verslunareigendur í hópi velunnara verslunarinnar á Facebook. 

„Við getum því miður ekki lengur barist fyrir lífinu í búðinni og þó við höfum ætlað að þrauka fram yfir Hvítasunnu þá breyttust aðstæður snögglega og við höfum ákveðið að rífa plásturinn af.“ 

Björg hefur rekið verslunina undanfarin ár. Nú er komið að tímamótum.Vísir/Magnús Hlynur

Brunasala verður í versluninni á föstudag og laugardag á meðan eitthvað verður til.

„Afsláttur verður 25-50 prósent og verður þá verðið um og undir Bónusverði. Við eigum eftir að sakna ykkar sárt Takk fyrir samveruna undanfarin ár,“ segir í kærleikskveðju Bjargar Ragnarsdóttur, Dodda, Sigurjóns og Siggu.

Magnús Hlynur tók hús á Björgu verslunareiganda árið 2020.

Hafa gefið allt í reksturinn

„Þetta er að sjálfsögðu mjög leiðinlegt. Við erum búin að setja allt sem við eigum í þetta. Bæði lífið og sálina og líkamann. En þegar við höfum ekki nema sumartraffíkina, við höfum ekki heimamenn með okkur yfir veturinn, þá bara gengur þetta ekki. Þó svo að við höfum velvild allra heimamanna, það vantar ekkert upp á það,“ segir Björg í samtali við Vísi.

Þá segir Björg að þau fari út úr rekstrinum með vissu um að þau hafi staðið sig vel. „Þó að við hefðum viljað vera aðeins lengur. En það er bara svona.“

Hún segir að næst taki við langþráð sumarfrí, það fyrsta frá árinu 2019 og hún muni finna sér eitthvað annað að gera eftir sumarið. Bróðir hennar sem hefur staðið að rekstrinum með henni hafi þegar ákveðið að vinna áfram í sveitinni, enda sé þar gott að vera.


Tengdar fréttir

Tvísýnt um verslun í vinsælli sumarhúsabyggð

Alls óvíst er hvort verslun að Minni-Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi muni hefjast þar aftur á næstunni. Verslunin hefur þjónað einni vinsælustu sumarhúsabyggð landsins, þar sem eru á þriðja þúsund sumarhús, um árabil, auk þess sem í sveitarfélaginu er 460 manna íbúabyggð.

Verslunin á Borg lokuð um skeið

Rekstri verslunarinnar að Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi hefur verið hætt. Mun sami rekstraraðili ekki opna þar aftur.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×