Golf

Hefur á­hyggjur af því að fólk sé að missa á­hugann

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Rory McIlroy segir það vera synd að það vanti marga af bestu kylfingunum á Players mótinu í ár.
Rory McIlroy segir það vera synd að það vanti marga af bestu kylfingunum á Players mótinu í ár. Getty/Jared C. Tilton

Norður-írski kylfingurinn Rory McIlroy hefur miklar áhyggjur af stöðunni í golfheiminum þar sem eru enn tvær stórar fylkingar þrátt fyrir fréttir af mögulegri samvinnu PGA og LIV.

Peningarnir flæða hjá LIV og sádi-arabíska mótarröðin hefur platað marga af bestu kylfingum heims yfir til sín.

Þetta þýðir að það vantar marga af bestu kylfingunum á Players Championship mótinu í Flórída sem fer fram í þessari viku.

„Ég held að það sé engin einföld lausn til,“ sagði Rory McIlroy í samtali við breska ríkisútvarpið.

„Allir þurfa núna að setja tilfinningar sínar og egóin til hliðar og finna lausn svo að við getum fengið alla bestu kylfingana til að keppa á móti hverjum öðrum á ný,“ sagði McIlroy.

„Þetta er stærsta mótið fyrir utan risamótin og við erum ekki með alla bestu kylfingana í heimi að keppa hér. Það er mikil synd. Ég vona að það breytist fljótt því ég miður held ég að fólk sé að missa áhugann,“ sagði McIlroy.

„Fyrir utan harðasta áhugafólkið þá mun hinn almenni áhugamaður stilla á golfið fjórum sinnum á ári til að fylgjast með risamótunum. Áð mínu mati þá á golfíþróttin á að skipta meira máli en bara í fjórar vikur á árinu. Því fyrr sem við finnum lausnina því betra,“ sagði McIlroy.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×