Viðskipti innlent

Seðla­bankinn heldur enn stýri­vöxtum ó­breyttum

Atli Ísleifsson skrifar
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri mun ásamt félögum úr peningastefnunefnd gera grein fyrir ákvörðun nefndarinnar á fréttamannafundi klukkan 9:30.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri mun ásamt félögum úr peningastefnunefnd gera grein fyrir ákvörðun nefndarinnar á fréttamannafundi klukkan 9:30. Vísir/Arnar

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 9,25 prósent.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu peningastefnunefndar sem birt var klukkan 8:30.

„Verðbólga minnkaði lítillega í febrúar og mældist 6,6%. Undirliggjandi verðbólga hefur einnig hjaðnað en er líkt og mæld verðbólga enn vel yfir verðbólgumarkmiði. Verðbólguvæntingar eru einnig yfir markmiði sem gæti bent til þess að verðbólga verði áfram þrálát.

Nýleg endurskoðun Hagstofu Íslands á þjóðhagsreikningum sýnir að hagvöxtur á síðustu árum var meiri en fyrri tölur bentu til. Spennan í þjóðarbúinu virðist því vera umfram það sem áður var talið. Áfram hægir þó á vexti efnahagsumsvifa enda er taumhald peningastefnunnar töluvert.

Óvissa hefur minnkað eftir undirritun kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Spennan í þjóðarbúinu gæti þó leitt til þess að launaskrið verði meira en ella. Einnig gætu aðgerðir í ríkisfjármálum aukið eftirspurn og verðbólguþrýsting.

Mótun peningastefnunnar á næstunni mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga,“ segir í yfirlýsingu peningastefnunefndar. 

Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, og Rannveig Sigurðardóttur, varaseðlabankastjóri peningastefnu og staðgengill formanns, munu grein fyrir yfirlýsingu peningastefnunefndar og kynna efni Peningamála á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Hægt verður að fylgjast með útsendingu frá fundinum í spilaranum að neðan.

Vextir verða því sem hér segir:

  1. Daglán 11,0%
  2. Lán gegn veði til 7 daga 10,0%
  3. Innlán bundin í 7 daga 9,25%
  4. Viðskiptareikningar 9,0%




Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×