Viðskipti innlent

Fjár­festar líta í sí­auknum mæli til mikil­vægis kynja­jafn­réttis

Atli Ísleifsson skrifar
Freyja Vilborg Þórarinsdóttir er stofnandi og framkvæmdastjóri GemmaQ sem rataði fyrst á íslenskan markað á Keldunni á haustdögum 2019.
Freyja Vilborg Þórarinsdóttir er stofnandi og framkvæmdastjóri GemmaQ sem rataði fyrst á íslenskan markað á Keldunni á haustdögum 2019. Erna Rós Kristinsdóttir

„Þessi aukna vitundarvakning um mikilvægi kynjajafnréttis og aukin eftirspurn eftir samfélagslegum fjármálaafurðum – ábyrgum lausnum og upplýsingum um ófjárhagslega þætti – felur í sér mikil tækifæri fyrir Ísland.“

Þetta segir Freyja Vilborg Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri GemmaQ kynjakvarðans, en félagið gerir notendum kvarðans kleift að skoða og meta fjárfestingakosti á markaði með sérstakri áherslu á kynjajafnrétti.

Félagið opnaði nýverið nýja síðu, GemmaQ Finance, þar sem notendur geta lagt mat á fjárfestingar út frá lykil fjárhags- og markaðsupplýsingum, með kynjajafnrétti að leiðarljósi.

Eigum að markaðssetja okkar ágætu jafnréttisstöðu

Freyja segir engan vettvang sambærilegan og GemmaQ og að tækifærin á Bandaríkjamarkaði séu mikil. Sömuleiðis eru tækifærin mikil fyrir Ísland.

„Við eigum að grípa þetta einstaka tækifæri og markaðssetja okkar ágætu jafnréttisstöðu, þó að alltaf megi gera betur, fjármagna ríkissjóð og fyrirtæki okkar á grundvelli jafnréttis með útgáfu á sérstökum jafnréttisskuldabréfum, jafnvel á betri kjörum en á alþjóðlegum fjármálamörkuðum.

Það eru ekki aðeins alþjóðastofnanir eða sveitarfélög erlendis sem byrjuð eru að fjármagna sig á þennan nýstárlega hátt, heldur jafnframt stórfyrirtæki og fjármálafyrirtæki,“ segir Freyja.

Hefur vaxið hratt

GemmaQ kynjakvarðinn var fyrst opinberaður fyrir íslenskan markað á Keldunni haustið 2019, en einnig eru rauntímaupplýsingar og vísitala GemmaQ aðgengileg í gegnum AWS Data Exchange og CSRHub, sem er meðal annars sýnilegt í Bloomberg Terminal. GemmaQ hefur opnað skrifstofu í Seattle í Bandaríkjunum þar sem fjölmargir af bandarísku tæknirisunum eru með sinn heimavöll.

Freyja segir þetta vera markað sem hafi vaxið hratt síðastliðin fimm ár og að tæknilausnir GemmaQ hafi verið aðlagaðar að þörfum markaðarins. Hún segir að með nýjustu uppfærslunni sé notendum gert mögulegt að skoða og meta fjárfestingakosti á markaði með sérstakri áherslu á kynjajafnrétti.

Styttan af stúlkunni sem var stillt upp gegn styttunni af nautinu á Wall Street árið 2017.Getty

Á þeim tíma er bronsstyttan var afhjúpuð

Freyja starfaði hjá Merrill Lynch, eignastýringararmi Bank of America, þegar jafnréttistengdir vísitölusjóðir fóru fyrst að gera vart við sig árið 2017.

„Þetta var á þeim tíma þegar bronsstyttan af óttalausu stúlkunni birtist, hnarreist með hendur á mjöðmum andspænis hinum þekkta nautskúlptúr á Wall Street, fjármálahverfi New York. Hjá Merrill Lynch fékk ég tækifæri til að fylgjast náið með þróuninni á markaðnum og jukust eignir í stýringu jafnréttistengdra sjóða á örfáum árum um 1900 prósent – frá 1 milljarði Bandaríkjadala í 20 milljarða.

Á þeim tíma voru stofnanafjárfestar á borð við lífeyrissjóði byrjaðir að gera ríkari kröfur til jafnréttismála meðal fyrirtækja í eignasafni sínu, og mikilvægi þess að hafa jöfn kynjahlutföll í stjórnunarstöðum - ekki aðeins út frá samfélagslegu mikilvægi til að vinna að Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna – heldur jafnframt út frá fjárhags- og efnahagslegu mikilvægi enda fjölmargar rannsóknir sem hafa sýnt að fyrirtæki með jafnari kynjahlutföll meðal stjórnenda skila almennt meiri hagnaði heldur en fyrirtæki þar sem ekki er gætt að kynjajafnvægi.

Það sem vantaði hins vegar á markaðinn var tól sem tengdi þessa þætti saman, og hjálpaði stofnana- og einstaklingsfjárfestum að fjárfesta með ábyrgum hætti – með jafnrétti að leiðarljósi – og þess vegna varð GemmaQ til,“ segir Freyja.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×